Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Handtekinn með kylfu, hníf og steypustyrktarjárn

Read Full Article →

Miklar annir voru hjá lögreglunni í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld og nótt. Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi segir verkefni lögreglu hafa verið óvenjumörg undanfarna daga. Tveir einstaklingar voru handteknir í miðbænum í gær vegna alvarlegrar líkamsárásar þar sem hníf var beitt. Sá sem ráðist var á var fluttur á bráðamóttöku en gerendurnir voru vistaðir í fangaklefum og dúsa þar enn að sögn Guðmundar. Hann kvaðst ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið sem væri á borði rannsóknardeildar. Rannsóknarlögreglan vildi ekki veita frekari upplýsingar um málið er fréttastofa leitaðist eftir þeim. Árásin náðist á upptöku Þá var lögreglan kölluð út að Naustinni á miðnætti, en þar hafði karlmaður ráðist á annan fyrir utan skemmtistaðinn Gaukinn. Árásarmaðurinn flúði vettvang áður en lögreglu bar að garði. Brotaþoli er maður á þrítugsaldri og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. Guðmundur kveðst ekki vita hvert ástand hans sé en segir áverkana ekki hafa verið lífshættulega. Lögregla hefur ekki haft uppi á árásarmanninum en fer nú yfir myndefni af árásinni sem náðist á upptöku í öryggismyndavél. Vopn og fíkniefni Þá handtók lögregla einnig mann á þrítugsaldri fyrir utan spilasalinn Mónakó á Laugavegi. Hann var handtekinn fyrir vopnalagabrot og vörslu og meðferð fíkniefna. Guðmundur segir manninn hafa verið í annarlegu ástandi og að lögregla þekki vel til hans. Hann var fluttur á bráðamóttöku. Maðurinn var með kylfu og vasahníf í fórum sínum auk steypustyrktarjárns sem hann hafði útbúið handfang á. Guðmundur segir honum hafa verið sleppt úr haldi en að hann megi eiga von á sekt eða ákæru fyrir vopnaburð. Þá hafi lögregla gert efni sem maðurinn var með á sér upptæk og sent þau til efnagreiningar. Magn þeirra var ekki mikið og voru þau líklegast ætluð til neyslu.

Share this article