Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Varað við hvassviðri á Breiðamerkursandi

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Varað við hvass­viðri á Breiða­merk­ur­sandi Hugrún Hannesdóttir Diego Vegagerðin varar við miklu hvassviðri og sandfoki við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Aðstæður eru alls ekki á færi bíla með aftanívagna, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is. Vegfarendur eru beðnir að kanna ástand áður en lagt er af stað. Einnig hefur orðið vart við bikblæðingar vestan við Jökulsárlón og biður Vegagerðin vegfarendur að aka með gát. Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun 40% fleiri þyrlu­út­köll það sem af er júlí Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa sinnt 40% fleiri útköllum það sem af er júlí en á sama tíma í fyrra. Útköllin hafa verið allt að fjögur á dag. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Færra ungt fólk býr í for­eldra­hús­um Hlutfall ungs fólks sem býr í foreldrahúsum hefur minnkað um 10% frá því í fyrra samkvæmt nýrri búsetukönnun HMS. Samhliða fjölgar fullorðnum á leigumarkaði lítillega. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Mað­ur­inn sem féll í Ölfusá er látinn Maðurinn sem féll í Ölfusá í gærkvöld er látinn. Tildrög þess að hann hafnaði í ánni eru til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tek­inn með kylfu, hníf og steypu­styrkt­ar­járn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo menn fyrir alvarlega líkamsárás í gærkvöld. Önnur líkamsárás var framin fyrir utan Gaukinn en gerandinn flúði vettvang. Þá var annar maður handtekinn fyrir vopnaburð og fíkniefnalagabrot fyrir utan Mónakó. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Ali Ex­press sektað um næstum átta­tíu millj­arða króna Kínverska netverslunin Ali Express fær á sig næstum áttatíu milljarða króna sekt frá Evrópusambandinu fyrir að koma ekki í veg fyrir að hættulegar og ólöglegar vörur séu seldar á vefsíðu fyrirtækisins. Greint var frá þessu í Brussel núna klukkan tíu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Fimmt­án nýjar raf­magns­rút­ur hjá GTS á Sel­fossi Rútufyrirtæki Guðmundar Tyrfingssonar á Selfossi hefur fjárfest í fimmtán nýjum rafmagnsrútum, fyrir um einn milljarð króna, það sem af er ári. Mikil ánægja er með bílana, sem allir eru frá Kína. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Andy Burn­ham nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands Andy Burnham er nýr forsætisráðherra Bretlands. Karl Bretakonungur setti hann formlega í embætti á fundi í Buckingham-höll á tólfta tímanum. Hann er 59. forsætisráðherra Bretlands og sá sjötti á síðustu tíu árum. FRÉTTAVAKT Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Vill að Judit Polgar verði for­seti Forsætisráðherra Ungverjalands vill að fyrrum besta skákkona heims verði næsti forseti landsins. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Þrett­án ára dreng­ur lést í fagn­að­ar­lát­um Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni í nótt þegar gosbrunnur hrundi í borginni Ciudad Rodrigo. Spánverjar urðu heimsmeistarar í knattspyrnu þegar þeir unnu Argentínu í úrslitaleik í gær. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Árásir níundu nótt­ina í röð Íranar og Bandaríkjamenn héldu áfram árásum á skotmörk í Mið-Austurlöndum í nótt. Bandarískur hermaður féll þegar verið var að sprengja íranskan dróna sem féll til jarðar í norðurhluta Íraks í gær. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Enn þrálát væta vest­an­lands Útlit er fyrir allt að 24 stiga hita austanlands í dag en skýjað með köflum. Búast má við áframhaldandi rigningu eða súld á vestanverðu landinu og á höfuðborgarsvæðinu. Næstu helgi á að sjást til sólar á Vesturlandi. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Tíu eft­ir­minni­leg­ustu at­vik­in á HM HM í fótbolta lauk í gærkvöld þegar Spánverjar urðu heimsmeistarar með sigri á Argentínu í úrslitaleiknum. Tíu eftirminnilegustu atvikin á mótinu, sem hófst 11. júní, voru rifjuð upp í Stofunni á RÚV eftir leikinn. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Samfélag Þvotta­björn­inn Ji­m­othy slær í gegn á sam­fé­lags­miðl­um Lítill þvottabjörn með óvenjulegt vaxtarlag hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum. Stuttur háls hans gæti stafað af meðfæddum galla í hryggjarliðum sem greinist aðallega í hundum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Al­var­leg hnífa­árás í 101 Einn var fluttur á bráðamóttöku eftir alvarlega líkamsárás þar sem hníf var beitt í gær eða nótt. Annar var fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás og einn var handtekinn fyrir brot á vopnalögum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Vara­for­seta­hjón­in í Banda­ríkj­un­um eign­uð­ust son Brynja Dögg Friðriksdóttir Varaforsetahjónin á Mæðradegi hermanna í Hvíta húsinu 6. maí sl. EPA / YURI GRIPAS / POOL JD Vance varaforseti Bandaríkjanna og Usha eiginkona hans eignuðust dreng í gær. Þetta er fjórða barn þeirra, fyrir eiga þau tvo drengi og stúlku sem eru öll undir tíu ára aldri. Þetta er í fyrsta sinn í yfir 150 ár sem varaforseti Bandaríkjanna eignast barn í embætti. Vance hefur margoft og við hin ýmsu tilefni hvatt Bandaríkjamenn til að eignast fleiri börn. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mið- og Suður-Ameríka Ferju með yfir hund­rað manns hvolfdi í Gvæj­ana Að minnsta kosti 67 var bjargað af ferju sem hvolfdi í Gvæjana. Mikil leit stendur enn yfir. Fyrst var talið að 133 væru um borð en yfirvöld segja að farþegalistinn hafi ekki verið réttur. Því gætu enn fleiri hafa í ferjunni. 20. júlí 2026 kl. 2:30ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Uppboð á lands­liðs­bún­ing­um og fleiri hlutum til styrkt­ar íbúum í Dram­men Norska knattspyrnusambandið ætlar að standa fyrir uppboði á ýmsum hlutum tengdum nýafstöðnu heimsmeistaramóti í fótbolta. Notaðir og ónotaðir fótboltaskór og búningar eru meðal þess sem boðið verður upp. 20. júlí 2026 kl. 1:05ERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál 150 íbúar yf­i­gáfu heim­ili sín vegna skóg­ar­elda Brynja Dögg Friðriksdóttir Sumarið hefur verið annasamt hjá slökkviliðsmönnum í Frakklandi. Þessir börðust við skógarelda í Fontainebleau-skóginum suður af Parísarborg 13. júlí sl. EPA / GAUTHIER BEDRIGNANS Yfir 600 slökkviliðsmenn börðust við skógarelda í Suður-Frakklandi í gær. Tíu heimili urðu eldinum að bráð og tjón varð á níu til viðbótar. Slökkviliðsmaður slasaðist í aðgerðunum, þó ekki alvarlega. Um 150 íbúar í tveimur bæjum í sveitarfélaginu Var í Provence-Alpes-Côte d'Azur-héraði yfirgáfu heimili sín í gær vegna skógareldanna sem enn hefur ekki tekist að ráða niðurlögum á. Gróður er mjög þurr og eldurinn breiddist hratt út í miklum og heitum vindi. Hitinn fór í 40 stig í gær og appelsínugul viðvörun er í gildi fyrir mánudag vegna hitans. 20. júlí 2026 kl. 0:12ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Árás á flutn­inga­skip fyrir utan Odesu Brynja Dögg Friðriksdóttir Mikinn reyk lagði frá skipinu eftir árásina. AP / Michael Shtekel Sex voru drepnir og tveir særðust í árás á tyrkneskt flutningaskip á Svartahafi, nærri hafnarborginni Odesu í Úkraínu í gær. Í áhöfn skipsins eru meðal annars sýrlenskir og indveerskir ríkisborgarar. Átta var bjargað, fjögurra er enn saknað. Skipið, Golden Leo, er í eigu tyrknesks fyrirtækis en siglir undir fána Gíneu-Bissaú. Úkraínski sjóherinn segir að Rússar hafi skotið þremur flugskeytum á skipið þegar það var á leið frá Odesu með korn. 19. júlí 2026 kl. 23:28INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Vatns­leki í Vest­ur­bæn­um Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í kvöld vegna vatnsleka í húsi á horni Bræðraborgarstígs og Bárugötu. Slökkviliðið fór einnig í útkall vegna barns sem hafði læst sig inni á salerni. 19. júlí 2026 kl. 22:23ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Spánn - Arg­ent­ína Spánverjar eru heimsmeistarar karla í fótbolta í annað sinn eftir 1-0 sigur á Argentínu í úrslitaleiknum. Ferran Torres skoraði eina mark leiksins í framlengingu. 19. júlí 2026 kl. 21:30INNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Maður sem féll í Ölfusá er fund­inn Sigrún Björk Hjartardóttir Lögreglu barst tilkynning um klukkan sjö í kvöld um að maður hefði fallið í Ölfusá. Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook kemur fram að hann hafi fundist neðar í ánni eftir stutta leit og verið bjargað á land. Lögregla, sjúkralið, björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og brugðust við á hæsta forgangi. Maðurinn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Reykjavík með þyrlu Gæslunnar. Ekki verða veittar frekari upplýsingar um líðan hans. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum úr tilkynningu lögreglunnar. RÚV / Arnar Halldórsson 19. júlí 2026 kl. 20:18ERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Ítölsk blaða­manna­sam­tök slegin yfir hrotta­legu morði Saksóknarar á Ítalíu rannsaka morð á íþróttafréttamanni á Suður-Ítalíu. Nokkra daga tók að bera kennsl á líkið. 19. júlí 2026 kl. 20:09ÍÞRÓTTIR Golf Axel og Guðrún unnu Hval­eyr­ar­bik­ar­inn Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar á einu af sterkustu golfmótum ársins, Hvaleyrarbikarnum, sem lauk í dag. Úrslit í karlaflokki réðust í bráðabana. 19. júlí 2026 kl. 19:39ERLENDAR FRÉTTIR Rússland Vonin úti fyrir stjórn­ar­and­stæð­ing­inn Nad­ez­d­in Þingkosningar verða í Rússlandi í september og stjórnarandstæðingar sem hyggja á framboð fá að finna fyrir járnkrumlu Kremlar. Einn þeirra hlaut á dögunum dóm fyrir að sýna mynd af Alexei Navalny og fær ekki að bjóða sig fram. 19. júlí 2026 kl. 19:09INNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin List í lýsi­s­tönk­um á Rauf­ar­höfn Gömlu lýsistankarnir á Raufarhöfn hafa öðlast nýtt líf. Framkvæmdir ganga hægt en örugglega og brátt verða tvö fullbúin rými til listsýninga. 19. júlí 2026 kl. 18:55ÍÞRÓTTIR Fótbolti Stór­sig­ur KR og svipt­ing­ar á botn­in­um Tveir leikir voru í Bestu deild karla í fótbolta í dag og tveir í Bestu deild kvenna. Hjá körlunum vann KR 5-0 sigur á Stjörnunni og hjá konunum lyftu tvö lið sér upp úr fallsæti. 19. júlí 2026 kl. 18:27INNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Vonar að eld­ur­inn í Dram­men veki Ís­lend­inga til vit­und­ar Brunaverkfræðingur segir marga samverkandi þætti hafi valdið því hve mikið brann í Drammen í Noregi um helgina. Hann vonar að

Share this article