Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Tíu drepnir í loftárás á flutningaskip á Svartahafi

This article describes kinetic military attacks, not a software vulnerability, so it does not contain information on a CVE, CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds. The primary threat is an escalation of missile and drone strikes targeting civilian cargo ships in the Black Sea, representing a significant shift in the regional conflict's attack surface. The stated objective of these attacks is to disrupt maritime trade and deter international companies from purchasing Ukrainian exports.
Read Full Article →

Að minnsta kosti tíu voru drepnir í loftárás Rússa á flutningaskip í Svartahafi undan ströndu úkraínsku borgarinnar Odesa. Rússar hafa sett aukinn kraft í árásir á flutningaskip síðustu vikur. Aukinn þungi í árásir á flutningaskip Flutningaskipið Golden Leo sigldi undir fána Gíneu-Bissaú. Úkraínski flugherinn greindi frá því að rússneskar eldflaugar hefðu hæft skipið í gær. Eldur braust út um borð. Leitar- og björgunaraðgerðir hófust í gær og stóðu yfir í nótt. Hafnaryfirvöld í Úkraínu sögðu í morgun að níu úr áhöfn skipsins hefðu verið drepnir auk úkraínsks flugmanns. Stjórnvöld á Indlandi staðfestu síðar að fjórir ríkisborgarar landsins hefðu látist í árásinni. 28 drepnir í Odesa Árásum á Odesa hefur fjölgað síðustu vikur og samkvæmt Oleh Kiper héraðsstjóra hafa 28 verið drepnir í árásum Rússa á héraðið það sem af er júlí. Rússar hafa einnig sett aukinn kraft í árásir á flutningaskip á Svartahafi. Sérfræðingar telja að Rússar setji aukinn þunga í árásir á flutningaskip til að fæla erlend fyrirtæki frá að kaupa úkraínskar vörur. Úkraínumenn treysta mikið á útflutning og hann er mikilvæg tekjulind fyrir stjórnvöld. Tveir þriðju hlutar útflutnings þeirra á landbúnaðarafurðum fer í gegnum Svartahaf – jafnvirði um níu milljarða bandaríkjadala eða yfir 1.100 milljarða íslenskra króna. Ítrekaðar árásir á báða bóga Loftárásir Rússa annars staðar í Úkraínu halda einnig áfram. Tveir voru drepnir í loftárásum á borgirnar Pavlograd og Kramatorsk og fjórir í loftárásum á Odesa og Zaporizhzhia, samkvæmt úkraínskum yfirvöldum. Tugir hafa verið drepnir í loftárásum Rússa á Úkraínu í þessum mánuði. Úkraínumenn hafa einnig sett aukinn kraft í árásir á Rússland. Drónaárás Úkraínuhers á rútu í Belgorod-héraði nærri landamærunum að Úkraínu varð fimm að bana. Alexander Shuvaev, héraðsstjóri Belgorod, sagði Úkraínumenn viljandi hafa beint árás sinni að rútunni. „Fimm saklausir almennir borgarar, þar á meðal einn ólögráða einstaklingur, létust í þessari ómannúðlegu og fyrirlitlegu árás. Að auki særðust 23 almennir borgarar, þar á meðal unglingur.“ Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum voru fleiri almennir borgarar drepnir í Úkraínu í júní en í nokkrum mánuði síðan í apríl 2022.

Share this article