Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.7.2026 | 19:00 Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Icelandair hafa tilkynnt að flogið verði heim með strandaglópana í nótt. Morgunblaðið/Eggert Setja bókamerki Fararstjóri Stjörnunnar í Gautaborg segir hóp ungra stúlkna sem nú bíður eftir að komast heim af Gothia Cup orðinn heldur óþreyjufullan. Ábótavant hafi verið um svör frá Icelandair í gegnum ferlið og ein móðir í hópnum hafi orðið að leggja út rúmlega 800.000 krónur í hótelgistingu fyrir hópinn. Yfir 100 strandaglópar hafa setið fastir í Gautaborg síðan í gærkvöldi, þegar Icelandair aflýsti flugferð sökum smávægilegrar bilunar í flugvélinni. Þá átti aukaflug að taka af stað um 18 í dag að íslenskum tíma en því flugi var líka aflýst þar sem lengri tíma tók að laga vélina en búist var við. Nú hefur Icelandair þó tilkynnt að Íslendingarnir verði sóttir með aukaflugi í nótt. Flogið verður kl. 01.20 að staðartíma heim til Íslands eða kl. 23.20 að íslenskum tíma. Þangað til dúsa yfir 100 ungmenni, fararstjórar og þjálfarar, sem voru á heimleið af knattspyrnumótinu Gothia Cup, á flugvellinum í Gautaborg. Frétt af mbl.is Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg „Kannski ekki alveg eðlilegt“ Hulda María Stef er fararstjóri 35 stúlkna frá Stjörnunni á aldrinum 12–14 ára og með henni eru fleiri fararstjórar og einhverjir foreldrar barnanna. „Stelpurnar eru óþreyjufullar eftir því að komast heim en við reynum að peppa þær, halda þeim glöðum og reyna að hafa ofan af fyrir þeim. Þær fá að vera í símanum eins og þær vilja og eru hérna í einhverjum leikjum um flugstöðina og að spila,“ segir Hulda en bætir við að þetta sé engin óskastaða til að vera í. Hún segir enn fremur að eftir aflýsingu flugsins í gærkvöldi hafi ein móðir úr hópnum lagt út rúmlega 800.000 krónur í hótelgistingu fyrir hópinn. „Sem er náttúrulega kannski ekki alveg eðlilegt,“ segir Hulda. Hún segir að sambandið við Icelandair hefði mátt vera betra í gegnum ferlið, sérstaklega í ljósi þess að um er að ræða hóp með ung börn. Henni skiljist þó að félagið komi til með að endurgreiða hótelgistinguna. Frétt af mbl.is Aflýsa öðru flugi: Íslendingarnir sóttir í nótt Mjög spenntar að komast heim Hópurinn bíður nú eftir að komast í flug sem á að fara kl. 1.20 að staðartíma en hann hefur verið á flugvellinum síðan fyrir kl. 14 í dag þar sem ekki var í boði að skrá inn farangur eftir klukkan fjögur. „Við erum mjög spenntar að komast heim og stelpurnar eru mjög spenntar að sjá foreldra sína,“ segir Hulda. Að öðru leyti hafi mótið og ferðin verið frábær skemmtun í alla staði sem muni lifa lengi í minningu þeirra. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Breki skrifar undir hjá stórliðinu Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Adam Karl með eina girnilegustu grillsteik sem sést hefur Lionel Messi tjáir sig: „Sársaukinn er gríðarlegur“ FH – Breiðablik, staðan er 0:0 Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Stærsta netverslunin er ríkisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jetten neitar tali um undanþágur Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Fundu mynt frá 11. öld við uppgröft Segir utanríkisráðherra grafa undan eigin trúverðugleika Mest lesið Í gær Í vikunni Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Mótmæltu veginum um árabil Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Segir Kópavogsbæ ekki geta firrt sig ábyrgð Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Nýjast á mbl.is » Breki skrifar undir hjá stórliðinu Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Adam Karl með eina girnilegustu grillsteik sem sést hefur Lionel Messi tjáir sig: „Sársaukinn er gríðarlegur“ FH – Breiðablik, staðan er 0:0 Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Stærsta netverslunin er ríkisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafnar orðum Þorgerðar Gerðu árásir sjöunda daginn í röð Jetten neitar tali um undanþágur Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mest lesið Í gær Í vikunni Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Mótmæltu veginum um árabil Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Segir Kópavogsbæ ekki geta firrt sig ábyrgð Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal

Share this article