Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Yfirvöld lýsa yfir neyðarástandi vegna úrhellisrigninga

  • What: Chilean authorities declare a state of emergency due to heavy flooding
  • Impact: At least 10 people dead, over 100 homes damaged, and infrastructure disrupted in Coquimbo and Atacama regions
Read Full Article →

EPA / HERNAN CONTRERAS Yfirvöld í Chile hafa lýst yfir neyðarástandi vegna úrhellisrigninga í norður Chile. Að minnsta kosti 10 eru látnir og yfir ellefu hundruð heimili eru gjöreyðilögð eða mikið skemmd samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í landinu. Þá eru sautján slasaðir og fjögurra er saknað. Rigningarnar eru einkum í norðurhéruðunum Coquimbo og Atacama þar sem mánaðarúrkoma féll á einni klukkustund. Vatnsyfirborð áa hefur hækkað, vegir hafa lokast og samfélög einangrast. Leðja og rafmagnsleysi hafa haft áhrif á drykkjarvatn í Coquimbo. Veðurstofa landsins segir að þetta sé mesta úrkoma sem fallið hefur í landinu í yfir tvo áratugi.

Share this article