- What: Icelandic company Kerecis to pay 40 million ISK in tax for acquiring Coloplast.
- Impact: Financial obligation for the company.
Innlent | Morgunblaðið | 24.2.2026 | 5:57 40 milljarða búhnykkur Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis og nú framkvæmdastjóri hjá Coloplast. Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Í haust mun Kerecis, ísfirski sáraumbúðaframleiðandinn, greiða í formi eingreiðslu 40 milljarða skatt í ríkissjóð Íslands vegna vegna kaupa danska móðurfélagsins, Coloplast, á hugverkaréttindum úr dótturfélaginu. Þetta má lesa út úr árshlutareikningi fyrirtækisins sem birtur var fyrir skemmstu. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis og nú framkvæmdastjóri hjá Coloplast, staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið og segir þessa ráðstöfun til marks um þá gríðarlegu verðmætasköpun sem hafi átt sér stað á Vestfjörðum á umliðnum árum. „Atvinnulífið á Vestfjörðum hefur vaxið hratt síðustu ár og skatttekjur hins opinbera hafa aukist mikið af þeirri ástæðu. Hér sjáum við því í raun ekki tilfallandi einskiptisávinning heldur endurspeglar þetta styrk og samkeppnishæfni atvinnulífsins á svæðinu,“ segir Guðmundur Fertram. Eingreiðsla í stað margra Hugverkaréttidin sem um ræðir voru í raun flutt til móðurfélagsins þann 19. desember 2024 en skattgreiðslan verður að veruleika nú, lögum samkvæmt. Coloplast hefur lögum samkvæmt heimild til þess að dreifa greiðslunni yfir allt að sjö ára tímabil en ákvörðun hefur verið tekin um að nýta hana ekki. Kerecis var selt til Coloplast árið 2023 fyrir 180 milljarða króna sem runnu að stærstum hluta til íslenskra fyrirtækja, lífeyrissjóða og fjárfesta, sem aftur greiddu skatta eftir viðeigandi reglum sem gilda um hvern hópinn fyrir sig. Kaupverð hugverkaréttindanna nú nemur áþekkri fjárhæð og kaupin á fyrirtækinu árið 2023. Um leið og skattskyldan myndast hér á landi við kaupin á hugverkaréttindunum lækkar skattbyrði Coloplast um samsvarandi upphæð í Danmörku. Veldur viðsnúningi Samþykkt fjárlög frá Alþingi fyrir árið 2026 gerðu ráð fyrir 28 milljarða króna halla á rekstri ríkissjóðs á yfirstandandi ári. Ekki var tekið tillit til skattgreiðslu Coloplast við þá afgreiðslu. Að öllum öðrum forsendum óbreyttum mun þessi ráðstöfun Coloplast því leiða til þess að afkoma ríkissjóðs snúist úr halla í 12 milljarða afgang á árinu. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Frystir um alla land í kvöld Einn fluttur á bráðamóttöku Fallinna minnst í Kænugarði Fjögur ár í foraði stríðsins Getur 20 ára stelpa átt 20% í íbúð foreldra sinna? Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 40 milljarða búhnykkur „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Mest lesið Í gær Í vikunni Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun „Fólk lítur á hendurnar á mér“ Varað við uppgangi glæpahópa í átján ár Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Lögð yrði áhersla á ETS-kerfið í aðildarviðræðum Samfélagið hrynur til grunna Lovísa leiðir lista Viðreisnar Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Nýjast á mbl.is » Frystir um alla land í kvöld Einn fluttur á bráðamóttöku Fallinna minnst í Kænugarði Fjögur ár í foraði stríðsins Getur 20 ára stelpa átt 20% í íbúð foreldra sinna? Umræðan Ótrúlegt baráttuþrek og afrek Úkraínu Hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fordæmdi „algjöra villimennsku Rússa“ „Við þurfum að fara í meiri vinnu“ Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Mest lesið Í gær Í vikunni Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki Telur ekkert svigrúm til að hækka bætur umfram laun „Fólk lítur á hendurnar á mér“ Varað við uppgangi glæpahópa í átján ár Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Lögð yrði áhersla á ETS-kerfið í aðildarviðræðum Samfélagið hrynur til grunna Lovísa leiðir lista Viðreisnar Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Bæjarstjóri tjáir sig ekki um framboð í Reykjavík Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028