Talið er að um tvær milljónir stuðningsmanna hafi fagnað heimsmeisturunum í fótbolta á mikilli fagnaðarhátíð í Madríd á Spáni í gær. Landsliðið fór fyrst á fund Filippusar konungs og konungsfjölskyldunnar og þaðan í móttöku til Pedro Sanchez forsætisráðherra Spánar. Landsliðinu var því næst keyrt um götur Madrídar í opinni rútu og að Cibeles-torgi þar sem mannhaf stuðningsmanna tók á móti því. Hver og einn landsliðsmaður var klappaður upp á sviðið, auk landsliðsþjálfara síns Luis del la Fuente. Það var sannarlega rífandi stemming á Cibeles-torgi og fjörið hélt áfram fram á kvöld. Bæði kvenna- og karlalandslið Spánar eru nú ríkjandi heimsmeistarar í fótbolta, en kvennaliðið vann heimsmeistaratitilinn árið 2023. Aldrei áður hafa bæði landslið frá sama landi verið heimsmeistarar á sama tíma. Heimsmeistararnir í fótbolta fengu glæsilegar móttökur stuðningsmanna sinna við heimkomuna í Madríd í gær. Talið er að um tvær milljónir stuðningsmanna hafi fagnað með heimsmeisturunum á Cibeles-torgi.