Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vonbrigði að lagareldisfrumvarp var ekki afgreitt

Read Full Article →

Bæjarráð Vesturbyggðar lýsir vonbrigðum með að frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um lagareldi hafi ekki náð afgreiðslu á Alþingi. Þetta kemur fram í bókun á síðasta fundi bæjarráðsins þar sem segir að lagareldi hafi á undanförnum árum orðið ein mikilvægasta atvinnugrein Vestfjarða og haft veruleg jákvæð áhrif á atvinnulíf, verðmætasköpun og byggðaþróun. Mikilvægt að ljúka málinu þrátt fyrir umdeild atriði „Fyrir sveitarfélög þar sem lagareldi er stunduð skiptir miklu máli að starfsemin búi við skýrt, stöðugt og fyrirsjáanlegt lagaumhverfi sem styður við ábyrga uppbyggingu og áframhaldandi fjárfestingu. Markmið frumvarpsins eru meðal annars að skapa skilyrði til sjálfbærrar uppbyggingar greinarinnar, efla atvinnulíf og byggð og tryggja skýrari umgjörð um starfsemina, segir í bókun bæjarráðs Vesturbyggðar. Þá segir að bæjarráðið telji að þrátt fyrir að einstök ákvæði frumvarpsins hafi verið umdeild hafi mikilvægt verið að ljúka málinu á grundvelli vandaðrar þingmeðferðar. Með hagsmuni atvinnulífs, umhverfis og nærsamfélaga að leiðarljósi „Skýr og fyrirsjáanleg löggjöf er forsenda þess að atvinnugreinin geti þróast áfram með ábyrgum hætti, í sátt við samfélagið og með hagsmuni atvinnulífs, umhverfis og nærsamfélaga að leiðarljósi,“ segir bæjarráðið og skorar á atvinnuvegaráðherra og Alþingi að vinna málið áfram án tafar og tryggja að nýtt frumvarp verði lagt fram við fyrsta tækifæri, þannig að nauðsynlegur lagarammi um lagareldi verði samþykktur sem fyrst.

Share this article