Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bragi leiðir lista Sjálfstæðismanna í Árborg

Read Full Article →

Sjálfstæðisflokkurinn í Árborg samþykkti í gær að falla frá prófkjöri, sem átti að ráða skipun á lista fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí, og ákvað að raða þess í stað á lista. Skipun sex efstu sætanna var ákveðin á fundinum í gær. Bragi Bjarnason bæjarstjóri verður í fyrsta sæti sem fyrr og Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs, skipar annað sætið. Röðun í sjöunda til 22. sæti á listanum verður að líkindum kláruð í næstu viku. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fimm bæjarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum. Hann myndar meirihluta með Áfram Árborg.

Share this article