Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Regína og Birna leiða stjórn Landspítalans

  • What: Leadership change at Landspítal's board
  • Impact: New board members appointed
Read Full Article →

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað stjórn Landspítala til næstu tveggja ára, að því er kemur fram í tilkynningu heilbrgðisráðuneytisins. Formaður nýrrar stjórnar er Regína Ásvaldsdóttir, sem lét nýlega af störfum sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar, og varaformaður Birna Einarsdóttir, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka. Aðrir stjórnarmenn eru Anna Sigríður Íslind, Thor Aspelund og Guðjón Hauksson. Varamenn í stjórn eru Óskar Reykdalsson og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir. Ráðherra skipar einnig tvo áheyrnarfulltrúa starfsmanna spítalans. Þeir eru Signý Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur og Theodór Skúli Sigurðsson svæfingalæknir. Varamaður er Steinunn Pálsdóttir sjúkraþjálfari. Stjórn Landspítala skal í samráði við forstjóra marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra og lögbundið hlutverk stofnunarinnar. Þá er hlutverk hennar einnig að yfirfara árlega starfsáætlun og ársáætlun samkvæmt lögum um opinber fjármál, leggja sjálfstætt mat á áætlanirnar og markmið og mælikvarða sem þar eru sett fram og gera ráðherra grein fyrir mati sínu.

Share this article