Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Mannfall almennra borgara jókst um tæplega 40%

This article describes an increase in civilian casualties in the Russia-Ukraine war, attributed to the increased use of long-range missiles and drones by both sides. These weapons are employed against densely populated civilian areas far from the front lines, constituting deliberate attacks on civilians and civilian infrastructure, which are war crimes under international humanitarian law. The article does not describe a software vulnerability; therefore, technical details such as CVSS scores, affected versions, or patches are not applicable.
Read Full Article →

Sameinuðu þjóðirnar segja að 37% aukning hafi orðið í fjölda almennra borgara sem hafi látið lífið í innrásarstríði Rússa í Úkraínu á fyrri hluta ársins samanborið við sama tíma í fyrra. Rússar og Úkraínumenn hafa aukið loftárásir á báða bóga undanfarna mánuði og lítið sem bendir til þess að stríðinu sé að ljúka. Danielle Bell, yfirmaður mannréttindaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu, sagði við fjölmiðla í Genf í Sviss í dag að 1.396 almennir borgarar hefðu verið drepnir og 7.978 særst í stríðinu það sem af er ári. Það sé 37% aukning frá sama tíma í fyrra og nærri tvöfalt meira en stofnunin skráði 2024. Bell segir að skýringin sé að hluta til vegna aukinnar notkunar stríðandi fylkinga á langdrægum eldflaugum og drónum. Þeim sé hægt að beita á þéttbýl svæði sem eru langt frá víglínunni. Hún nefndi sem dæmi loftárás á Kyiv fyrr í mánuðinum þar sem hluti fjölbýlishúss hrundi til grunna. 19 voru drepnir í árásinni og 76 særðust. Hún benti einnig á mikla aukningu í mannfalli almennra borgara í Rússlandi vegna aukinna loftárása Úkraínumanna. 250 hið minnsta hefðu verið drepin og 1.596 særst í árásum í Rússlandi fyrstu sex mánuði ársins. Það sé 121% aukning miðað við síðasta ár. Talsmaður Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna benti á að það væri mjög skýrt í lögum að almennir borgarar og borgaralegir innviðir nytu verndar alþjóðlegra mannúðarlaga og allar vísvitandi árásir væru stríðsglæpur.

Share this article