Stjórnendur Kirkjugarða Reykjavíkur biðja fólk um að fóðra ekki fugla í kirkjugörðunum. Þeir segja að undanfarið hafi borið á því að fólk dreifi matarleifum um garðana. Með þessu vilji fólk fóðra fugla en matarleifarnar geta líka laðað að önnur dýr, svo sem rottur og máva sem geta valdið bæði óþrifnaði og skemmdum. Í tilkynningu frá Kirkjugörðum Reykjavíkur er minnt á að bannað sé að skilja mold, jurtaleifar eða nokkuð annað eftir á leiðum eða götum garðanna sem getur valdið óprýði eða truflun. Matarleifar séu gott dæmi um það sem valdið geti óhreinindum eða óprýði.