Innlent | Morgunblaðið | 22.7.2026 | 7:00 Aðsend grein: Evran lagar ekki umferðina Elías Elíasson. Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Í sveitarstjórnarkosningum vorsins varð mikil hægrisveifla. Orsakir þess má að stórum hluta rekja til vaxandi umferðartafa á höfuðborgarsvæðinu sem hamla framleiðni og eru farnar að kosta þjóðfélagið tvö til þrjú prósent af vergri landsframleiðslu. Þetta er blóðtaka sem munar um og ekki bætir innleiðingarferli ESB ástandið. Forstöðumaður verkefnastofu borgarlínu steig nýlega fram í frétt á Vísi og hélt fram óbreyttri stefnu um borgarlínu. Fyrirtæki hans, Betri samgöngur ohf., virðist þannig telja að gerð borgarlínu skuli hafa sama forgang sem áður þrátt fyrir að íbúarnir telji úrbætur umferðartafa þurfa meiri forgang. Þarna þurfa fulltrúar sveitarfélaga í stjórn fyrirtækisins að taka í taumana. Umferðin hagræðir Skýrasta dæmið um hagræðingaráhrif umferðar á starfsemi þjóðfélagsins er sjávarútvegurinn. Með góðum samgöngum um vegina varð hagkvæmara að keyra afla milli byggðarlaga en láta skipin sigla á milli og selja aflann sérhæfðum fiskvinnslum, hverri sína tegund, eða fylla upp í umframgetu frystihúsa. Þarna gegnir fiskmarkaðurinn lykilhlutverki og árangurinn sést á því að íslenskur sjávarútvegur er rekinn með hagnaði í stað þess að vera ríkisstyrktur eins og algengt er í löndum ESB. Þessi hagræðing er það mikil að hún yfirvinnur fjarlægð Íslands frá mörkuðum ESB, ríkisstyrki og hátt gengi íslenskrar krónu gagnvart evru. Sama vegakerfi gerir það einnig hagkvæmt að selja aukaafurðir til sérhæfðra fyrirtækja svo framleiða megi t.d. snyrtivörur og sáraumbúðir. Matvöruiðnaður með landbúnaðarafurðir nýtur góðs af greiðum samgöngum á sama hátt. Annar iðnaður og verslun byggir einnig rekstur sinn á greiðum samgöngum jafnt í dreifbýli sem í þéttbýli höfuðborgarsvæðisins. Umferðartafir eru dragbítur Umferðartafir minnka framleiðni í iðnaði og eiga sinn þátt í háu kostnaðarverði íbúða á höfuðborgarsvæðinu, sem hefur valdið verðbólgu og er eitt mesta efnahagsvandamál sem nú er við að eiga á landinu. Akstur í tafinni umferð þreytir fólk svo það afkastar minna í vinnu. Þetta er talin skýring minni framleiðni sem rannsóknir sýna. Kostnaður vegna heilbrigðiskerfisins verður og meiri í borgum með miklar umferðartafir. Þá hefur verð sýnt fram á að fólk sækist síður eftir vinnu þar sem það þarf að berjast gegnum miklar tafir. Það kemur mest niður á fyrirtækjum sem byggja afkomu sína á vel hæfum millistjórnendum og þar með væntanlega einnig opinberri stjórnsýslu. Ábendingum ekki sinnt Á allt þetta hefur ítrekað verið bent áður. Leiðtogi Sjálfstæðisflokksins, nú borgarstjóri, boðaði stefnu sem tekur fullt mið af þessum staðreyndum og kjósendur höfuðborgarsvæðisins sögðu sína meiningu. Eftir þessu ber að fara en fyrirtækið Betri samgöngur ohf. heldur samt áfram að berjast fyrir allt of dýrri borgarlínu sem mun tefja umferð. Sömu sögu er að segja af baráttu ríkisstjórnarinnar fyrir að fá leyfi til að leiða okkur inn í ESB. Sýnt hefur verið fram á að öll rök þeirra um lægri vexti og vöruverð í ríkjum ESB eru haldlítil en áfram skal samt barist. Þarna standa sömu stjórnmálaöfl á bak við og sumir þeir sem börðust hvað harðast fyrir borgarlínu innan fallins vinstri meirihluta í Reykjavík standa nú í fremstu víglínu fyrir inngöngu í ESB. Þannig er því haldið fram að verðbólguvextirnir sem þeir sjálfir komu á með framgöngu sinni áður muni lagast ef við tökum nú upp evru. Evran lagar ekki heimatilbúinn vanda. Gæta þarf að Kvosinni Á það hefur verið bent að starfsfólki okkar í Brussel muni fjölga við inngöngu í ESB. Væntanlega mun starfsfólki stjórnarráðsins í Kvosinni í Reykjavík og þar í grennd einnig fjölga vegna alls þess reglugerðafargans sem innleiða þarf í leiðinni en nóg er þrengt að þessu starfsfólki nú þegar. Það líður sumt fyrir dýr bílastæði en mun auk þess þurfa að greiða gjald fyrir að keyra gegnum Miklubrautargöng og berjast gegnum vaxandi umferðartafir frá enda þeirra fram hjá lokuðum borgarlínuleiðum niður í stjórnarráð. Tafir munu og aukast á Sæbraut. Afköst fólksins munu minnka, erfiðara verður að fá hæfustu millistjórnendurna og hvort tveggja kemur niður á gæðum verkanna. Okkur verður verr stjórnað. Lokaorð Nú þegar hefur verið hægt á umferð um götur borgarinnar. Nýlega var þrengt að Laugavegi við Heklureitinn og Grensásvegi við Ármúla. Víðar hefur verið þrengt að götum með því að byggja þétt upp að þeim. Suðurlandsbrautin er næst á dagskrá en ekki síðust. Allt kemur þetta niður á samkeppnishæfni okkar gagnvart útlöndum, bæði hvað varðar útflutning og innflutta vöru. Önnur sveitarfélög á svæðinu hafa ekki í hyggju að tefja umferð hjá sér á sama hátt og Reykjavík. Stjórnarráðið verður því að færa hluta af starfsemi sinni þangað nema ef tekst að skapa því aðstöðu á Kringlusvæðinu en til að hún nýtist vel þarf að vera greið leið niður í Kvosina. Hin sveitarfélögin munu eflaust fagna því að fá til sín aukinn hlut af starfsemi stjórnarráðsins en hinar neikvæðu hliðar verða veigameiri. Þau þurfa því að leggjast á sveif með hinum nýja meirihluta í Reykjavík og endurskoða samgöngusáttmálann. Elías Elíasson, verkfræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Evran lagar ekki umferðina Búið að ná tökum á gróðureldum í Suður-Frakklandi Er sjónin alltaf sögunni ríkari? Tom Holland og Matt Damon skilja ekki þennan rétt Kamilla drottning gefur hátt í milljón bækur Umræðan Kostir smæðarinnar Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn haft samband vegna skrúfunnar Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Sjá fram á góðan þriðja ársfjórðung Mest lesið Í gær Í vikunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar Kári leggst gegn umsókn að Evrópusambandinu Borgarstjóri hefur áhyggjur af innbrotafaraldri Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Baudenbacher og Ólafur Ragnar ræða ESB Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Evran lagar ekki umferðina Búið að ná tökum á gróðureldum í Suður-Frakklandi Er sjónin alltaf sögunni ríkari? Tom Holland og Matt Damon skilja ekki þennan rétt Kamilla drottning gefur hátt í milljón bækur Umræðan Kostir smæðarinnar Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aflýsa öðru flugi: Íslendingarnir sóttir í nótt Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Mest lesið Í gær Í vikunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar Kári leggst gegn umsókn að Evrópusambandinu Borgarstjóri hefur áhyggjur af innbrotafaraldri Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Baudenbacher og Ólafur Ragnar ræða ESB Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir