Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Velferðin þarf verðmætasköpun

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 22.7.2026 | 12:50 Velferðin þarf verðmætasköpun Fabrice Le Saché var í för með franska utanríkisráðherranum í opinberri heimsókn til Íslands. mbl.is/Anton Brink Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst á mánudag Segist ekki hafa rætt við Jetten Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina ESB krafði Ísland um fyrir fram aðlögun Kjörfundur verði með styttra móti » Fleiri tengdar fréttir Utanríkisráðherra Frakklands kom hingað í opinbera heimsókn á mánudag, en með honum í för var m.a. Fabrice Le Saché, varaformaður MEDEF, samtaka atvinnulífsins í Frakklandi. Morgunblaðið átti við hann samtal og spurði fyrst hvar hann sæi mestu tækifærin til frekara samstarfs Íslands og Frakklands. „Þau eru fjölmörg að mínu viti, ég verð að játa að fjölbreytni hagkerfisins kom mér á óvart. Í mínum huga – og ég held í huga stórs hluta franska viðskiptalífsins – snerist Ísland um sjávarútveg, ál og, síðustu 15 árin, ferðaþjónustu. En tæknigeirinn, orkugeirinn, gagnaver, gervigreind, líftækni og öll sprota- og nýsköpunarhreyfingin hérna voru ekki raunverulega á okkar korti. Það var því virkilega áhugavert að sjá þetta með eigin augum og koma þeim skilaboðum áfram: að það sé hægt að fjárfesta á Íslandi. Og samstarf er tvíhliða. Íslensk fyrirtæki ættu líka að horfa suður á bóginn, út fyrir útflutning, og vera nógu djörf til að fjárfesta og skuldbinda sig í öðrum löndum. Innri markaðurinn, sem Ísland tekur þegar þátt í, er sameiginlegur leikvangur.“ Mario Draghi skrifaði í frægri skýrslu sinni um skort Evrópu á samkeppnishæfni og hvernig ofregluvæðing skaðar viðskiptalífið. Hefur Evrópa náð einhverjum árangri í úrbótum? „Ekki miklum. Ef þú skoðar greiningar um síðustu tvö ár og berð þær saman við tillögur Draghis – og einnig við skýrslu Enrico Letta um innri markaðinn – sérðu að innan við 15% af þeim hafa verið framkvæmdar. Draghi sagði að Evrópa þyrfti á holskeflu fjárfestinga og nýsköpunar að halda, því fjárfesting og nýsköpun eru eina leiðin fram á við. Annars drögumst við áfram aftur úr Kína og Bandaríkjunum. Samkeppnishæfni snýst að hluta til um einföldun, en ekki aðeins það. Hún snýst um leyfisveitingar, að flýta verkefnum, hraða ákvörðunum, bæta færni og laða að faglært starfsfólk. Þetta er vandamál á Íslandi og þetta er vandamál um alla Evrópu. Þetta snýst um að lifa af. Vilji Evrópa halda velli þarf hún sterkt hagkerfi. Við getum ekki viðhaldið evrópska velferðarkerfinu án þess að skapa verðmæti. Það er heilbrigð skynsemi, en hún gleymist stundum. Við þurfum að setja framleiðslu, vinnu og fjárfestingar aftur efst á dagskrá.“ Með Íslandi innan og utan ESB Talandi um fjárfestingar: Nú er í vændum þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi um aðildarviðræður við ESB, en utanríkisráðherra Íslands hefur þrýst hart á um undanþágur frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Ef til kæmi, myndi franskt atvinnulíf fella sig við að Ísland fengi undanþágu frá fjárfestingarreglum? „Við vinnum með Íslandi hvort sem það gengur í ESB eða ekki. Ísland er nú þegar hluti af innri markaðnum. Íslensk fyrirtæki eiga fulltrúa í gegnum BusinessEurope og við eigum í nánu samstarfi. Á morgun munum við hitta SA og SI. Qair hefur þegar fjárfest hér og önnur frönsk fyrirtæki eru að því. Að sjálfsögðu styður franski einkageirinn almennt dýpri samþættingu á innri markaði Evrópu, en eins og Draghi benti á er eitt stærsta vandamál Evrópu að það eru oft fleiri hindranir innan innri markaðarins en utan hans. Fólk talar um 15% bandarískan toll, en innan Evrópusambandsins er samsvarandi kostnaður vegna hindrana utan tolla um 56% fyrir vörur og um 110% fyrir þjónustu. Þannig að við eigum enn mikið verk fyrir höndum til að gera innri markaðinn raunverulega samþættan. Það eitt og sér gæti gefið hagvexti verulega innspýtingu. Frá okkar sjónarhóli viljum við meiri samþættingu, en við viljum líka Evrópu sem breytir í grundvallaratriðum nálgun sinni og er mun hlynntari atvinnulífi og hagvexti.“ Sjálfstæðið skiptir máli Frakkland glímir við ýmis vandamál varðandi samkeppnishæfni, ríkisfjármál og lífeyriskerfi. Af því sem þú hefur séð á Íslandi, er eitthvað sem Frakkland – eða Evrópa í víðara samhengi – gæti lært? „Já. Ég held að Ísland hafi þróað með sér sérstakt þanþol vegna þess að það er eyja. Þið verðið alltaf að hugsa um lífsbjörgina ef þið yrðuð skyndilega útilokuð frá umheiminum. Þetta er ekki bara fræðileg spurning hér. Þegar eldgos verða getur flug stöðvast og landið einangrast. Evrópa gæti lært af því hugarfari. Við þurfum ekki endilega fullkomið fullveldi í öllu, en við þurfum meira stefnumarkandi sjálfstæði. Covid sýndi okkur að við vorum ekki sjálfbjarga um jafnvel grunnlyf eins og parasetamól og lyfjahráefni. Um 80 eða 90% komu frá Kína og Indlandi. Orkukreppan í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu sýndi að ef við stjórnum ekki eigin orkuframleiðslu verðum við berskjölduð og verðbólga getur rokið upp. Þess vegna skiptir raforkuöryggi máli, fæðuöryggi sömuleiðis og Íslandi gengur mjög vel á því sviði. Þannig að Ísland, sem eyja, býður upp á dýrmætan lærdóm um hvernig á að lifa og dafna án þess að verða of háð öðrum. Ég dáist líka að því hvernig Íslandi tókst að fara frá því að reiða sig á eina atvinnugrein yfir í að þróa nokkrar aðrar. Það er ekki auðvelt. Fólk hér vinnur mikið og það er líka ákveðinn félagslegur stöðugleiki sem er mjög áhugaverður fyrir Evrópu, jafnvel þótt hann sé að breytast.“ Frumkvöðull Fabrice Le Saché er varaformaður MEDEF, helstu samtaka atvinnurekenda í Frakklandi, þar sem hann fer með málefni Evrópu. Hann er jafnframt stofnandi og stjórnarformaður Aera Group, fyrirtækis sem starfar á sviði umhverfisfjármála, orkuskipta og kolefnismarkaða, og gegnir einnig trúnaðarstörfum innan BusinessEurope, samtaka atvinnurekenda í Evrópu. Le Saché hefur verið helsti talsmaður fransks atvinnulífs í umræðu um samkeppnishæfni Evrópu, einfaldara regluverk og eflingu innri markaðarins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst á mánudag Segist ekki hafa rætt við Jetten Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina ESB krafði Ísland um fyrir fram aðlögun Kjörfundur verði með styttra móti » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Velferðin þarf verðmætasköpun Bandarískur liðstyrkur til Vestmannaeyja Ástandið aldrei verið eins slæmt Orri Steinn á Stamford Bridge Bandero snúinn aftur inn í lögsöguna Umræðan Kostir smæðarinnar Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segist ekki hafa rætt við Jetten Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rannsókn vegna andlátsins hætt Mest lesið Í gær Í vikunni Segist ekki hafa rætt við Jetten Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Málarar með tárin í augunum í vætunni Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar Bætir í vind og rigningu vestanlands „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót Kári leggst gegn umsókn að Evrópusambandinu Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Velferðin þarf verðmætasköpun Bandarískur liðstyrkur til Vestmannaeyja Ástandið aldrei verið eins slæmt Orri Steinn á Stamford Bridge Bandero snúinn aftur inn í lögsöguna Umræðan Kostir smæðarinnar Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Enginn haft samband vegna skrúfunnar Ákæru á hendur Skúla vísað frá Málarar með tárin í augunum í vætunni Mest lesið Í gær Í vikunni Segist ekki hafa rætt við Jetten Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Málarar með tárin í augunum í vætunni Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar Bætir í vind og rigningu vestanlands „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót Kári leggst gegn umsókn að Evrópusambandinu Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Heppinn Íslendingu

Share this article