Vestmannaeyjabær ætlar að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Suðurlands í skaðabótamáli bæjarins gegn Hugin, Vinnslustöðinni og VÍS vegna skemmda á vatnslögn og ljósleiðara í Vestmannaeyjahöfn. Þetta staðfestir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í samtali við fréttastofu. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarráðs í dag. Vestmannaeyjabær höfðaði skaðabótamál á hendur fyrirtækjunum vegna skemmda sem urðu á neysluvatnslögn og ljósleiðara þegar akkeri fiskiskipsins Hugins VE 55 dróst eftir botni Vestmannaeyjahafnar í nóvember 2023.