Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Yfir 6.400 íbúðir til sölu

Read Full Article →

Í byrjun júlí voru rúmlega 6.400 íbúðir til sölu á landinu öllu, þar af um 2.300 nýjar íbúðir en tæplega 4.100 íbúðir sem ekki teljast til nýrra íbúða, að því er kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu HMS. Á höfuðborgarsvæðinu voru um 3.800 íbúðir til sölu í byrjun júlímánaðar. Þar af voru um 3.200 fjölbýlisíbúðir og 570 sérbýlisíbúðir. Sérbýlisíbúðum til sölu á höfuðborgarsvæðinu hefur þó fjölgað mikið undanfarna mánuði, eða um tæpan þriðjung frá áramótum á sama tíma og framboð fjölbýlisíbúða til sölu hefur aukist um 18%. Mynd tekin úr mánaðarskýrslu HMS. HMS segir að á höfuðborgarsvæðinu hafi framboðið aukist sérstaklega mikið í Kópavogi og Garðabæ á allra síðustu vikum, en þar megi rekja aukninguna að stórum hluta til fjölgunar nýrra íbúða til sölu. Heilt yfir hefur hlutfall nýrra íbúða í framboði dregist saman frá áramótum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. Á höfuðborgarsvæðinu náði hlutfallið 50% í upphafi árs en hefur síðan þá lækkað jafnt og þétt niður í 40%. Framboð sérbýlisíbúða til sölu hefur aukist hraðar á síðustu mánuðum. Birgðatíminn lengst um 40% í ár Birgðatími íbúða - sem gefur til kynna hversu marga mánuði það tæki að selja allt framboð af íbúðum til sölu ef söluhraði síðasta mánaðar héldist óbreyttur - hefur lengst talsvert frá áramótum alls staðar á landinu samhliða mikilli fjölgun íbúða til sölu og færri kaupsamningum en undanfarin ár. Þriggja mánaða meðaltal birgðatímans mælist tæplega 7 mánuðir á höfuðborgarsvæðinu, tæplega 10 mánuðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og rúmlega 6 mánuðir annars staðar á landsbyggðinni, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan. Birgðatíminn á höfuðborgarsvæðinu mælist nú um það bil 40% lengri en í byrjun árs. „Rúmlega sjö mánuði tæki að selja allt íbúðarhúsnæði sem var til sölu á höfuðborgarsvæðinu í byrjun júní ef miðað er við að jafn margar íbúðir seldust í hverjum mánuði líkt og í maí síðastliðnum,“ segir í mánaðarskýrslunni.

Share this article