Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ein allsherjar upplýsingaóreiða“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.7.2026 | 10:30 „Ein allsherjar upplýsingaóreiða“ Sigríður Á. Andersen, Sigurður Ingi Jóhannsson, Lillja Alfreðsdóttir og Dilja Mist Einarsdóttir. Samsett mynd Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Rökræður í Hörpu um ESB Smæð Íslands okkar mesti styrkur Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Munu fasísk öfl ná yfirhöndinni í ESB? Ummælin vekja fleiri spurningar en þau svara » Fleiri tengdar fréttir Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, segir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra ekki hafa hagað sér í samræmi við siðareglur ráðherra. Þá er jafnframt kallað eftir því úr stjórnarandstöðunni að utanríkismálanefnd verði kölluð saman og bjóði Þorgerði að ganga á fund sinn. Greint hefur verið frá því að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi ekki rætt um möguleikann á varanlegum undanþágum Íslendinga frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins við forsætisráðherra Hollands, Rob Jetten, og vísað því á bug að hafa gefið slíkt í skyn. Hollensk stjórnvöld höfðu áður hafnað því að Jetten hefði sagt íslenskum stjórnvöldum að Ísland gæti fengið undanþágur, sérlausnir eða varanlega undanþágu frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins, eins og talið var að Þorgerður hefði haldið fram í viðtali við Vísi þann 9. júlí. Sú frétt Vísis var hins vegar leiðrétt í gær. Í hinni leiðréttu frétt kemur fram að samskipti hafi ekki farið fram á milli Þorgerðar og Jettens. Þorgerður hafi hins vegar átt í samtölum við „Hollendinga og aðra kollega í Evrópu“, sem hafa þó ekki verið nafngreindir. „Um þetta hefur verið fjallað alveg nánast upp á hvern einasta dag síðan 9. júlí og ráðherrann leiðréttir það ekki,“ segir Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins. Bendir Sigríður enn fremur á að í siðareglum ráðherra, sem sjá má á vef Stjórnarráðsins, og voru síðast samþykktar í mars 2025 af núverandi ríkisstjórn, sé skýrt kveðið á um að ráðherra beri að leiðrétta rangfærslur er varða málefni sem heyri undir ráðherra eins fljótt og auðið er. „Þannig að hennar viðbrögð í öllu þessu máli hafa verið algjörlega óásættanleg,“ segir Sigríður. „Með því að leiðrétta þetta ekki með afdráttarlausum hætti, um leið og þetta kom fram, elur hún á upplýsingaóreiðu í öllu þessu máli.“ Segir þingflokksformaðurinn upplýsingaóreiðu vera nákvæmlega það sem þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi bent á að hætta væri á í vor, ef þjóðaratkvæðagreiðslan yrði haldin í ágúst, þegar þing er ekki að störfum. Þá veltir Sigríður því jafnframt fyrir sér af hverju Þorgerður eða Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi ekki látið í sér heyra um málið síðustu vikur. „Það er eins og dagskipunin sé bara að það eigi ekkert að ræða í þessu máli og það er auðvitað ekki boðlegt, hvorki gagnvart þinginu og alls ekki gagnvart þjóðinni og fjölmiðlum sem eru dregnir á asnaeyrum.“ Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður og fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, segir að þrátt fyrir að komið hafi nú í ljós að Þorgerður hafi ekki átt í samskiptum við Jetten standi þó eftir að yfirlýsingar utanríkisráðherrans, sem og Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, um undanþágur og sérlausnir, fáist ekki staðfestar frá neinum nafngreindum ráðamanni. Þá tekur Sigurður Ingi undir með Sigríði. Hann segir að á einhverjum tímapunkti þurfi að kalla saman utanríkismálanefnd til að fara yfir stöðuna með Þorgerði. „Mér finnst þetta bara undirstrika hvað þetta er orðið ein allsherjar upplýsingaóreiða af hálfu stjórnvalda og það er mikilvægt sem aldrei fyrr að utanríkismálaráðherra skýri mál sitt fyrir þingi og þjóð,“ segir Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið. Diljá, sem situr í utanríkismálanefnd, segir enn fremur nefndina hafa ítrekað kallað eftir því að Þorgerður myndi skýra mál sitt betur í aðdraganda þess að þingi var slitið. Ekki hafi upplýsingaóreiðan skánað þannig að auðvitað færi best á því að utanríkisráðherra kæmi fyrir nefndina og skýrði mál sitt og gæfi nefndarmönnum greinargóðar upplýsingar. Þá segir Diljá það sérstakt að fréttaflutningur sem borið hafi mikið á síðustu daga og vikur hafi ekki verið leiðréttur fyrr, ef rangt hafi verið haft eftir Þorgerði. Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir í samtali við Morgunblaðið að orð Þorgerðar um samskipti við Hollendinga og aðra kollega í Evrópu veki fleiri spurningar. „Forsætisráðherra Hollands hefur lýst þeirri afstöðu opinberlega að ríki sem ganga í Evrópusambandið verði að lúta sameiginlegri sjávarútvegsstefnu þess. Hollensk stjórnvöld hafa síðan hafnað því að Jetten, ráðherrar hans eða embættismenn, hafi gefið íslenskum stjórnvöldum fyrirheit um undanþágur, sérlausnir eða varanlegt frávik frá þeirri stefnu. Þá dugar ekki að vísa almennt til ótilgreindra samtala á bak við luktar dyr, eins og utanríkisráðherra gerir,“ segir Lilja. Þá segir Lilja þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst snúast um hvort íslensk stjórnvöld fái umboð til að hefja aðildarviðræður að nýju. Áður en þjóðin veiti slíkt umboð eigi hún rétt á að vita hvaða forsendur teljist raunhæfar. „Ef ríkisstjórnin telur að Ísland geti haldið fullu forræði yfir fiskveiðiauðlindinni innan Evrópusambandsins verður hún að leggja fram gögn sem styðja það mat. Þetta snýst um faglega stjórnsýslu og upplýsingagjöf. Ráðherra verður að hafa trúverðugleika embættis síns að leiðarljósi í allri framgöngu.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Rökræður í Hörpu um ESB Smæð Íslands okkar mesti styrkur Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Munu fasísk öfl ná yfirhöndinni í ESB? Ummælin vekja fleiri spurningar en þau svara » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þrjú íslensk lið í eldlínunni Netþrjótahópurinn að baki árásinni alls óþekktur Starbucks opnar í Kringlunni í haust „Ein allsherjar upplýsingaóreiða“ Frammistaða Messi á HM ofmetin? Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ákæru á hendur Skúla vísað frá Nátttröllið í úkraínska hernum Skoða þarf úrskurðinn í samræmi við þrjú skilyrði Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Smæð Íslands okkar mesti styrkur Varað við vindi Færir rök gegn notkun tækninnar við nám Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Þrjú íslensk lið í eldlínunni Netþrjótahópurinn að baki árásinni alls óþekktur Starbucks opnar í Kringlunni í haust „Ein allsherjar upplýsingaóreiða“ Frammistaða Messi á HM ofmetin? Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ákæru á hendur Skúla vísað frá Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Mest lesið Í gær Í vikunni Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Smæð Íslands okkar mesti styrkur Varað við vindi Færir rök gegn notkun tækninnar við nám Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá

Share this article