Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Allar helstu viðvaranir hafa ræst“

Read Full Article →

Höldur – Bílaleiga Akureyrar hagnaðist um 384 milljónir króna á árinu 2025, samanborið við tæplega 334 milljóna króna hagnað árið áður. Tekjur bílaleigunnar jukust um 5,3 milli ára námu rúmlega 16,1 milljarði króna í fyrra. Rekstrargjöld jukust um 8 % og námu 9,2 milljörðum. Ársverk voru 291 samanborið við 279 árið áður. EBITDA-hagnaður félagsins jókst um 1,9% milli ára og nam tæplega 6,9 milljörðum króna. Eignir Hölds námu 36 milljörðum króna í lok árs 2025 og eigið fé var um 4,9 milljarðar króna. „Með hreinum ólíkindum hvernig stjórnvöld hafa farið fram“ Í skýrslu stjórnar í nýbirtum ársreikningi félagsins segir að reksturinn hafi gengið ágætlega á árinu 2025. „Þá má geta þess að gríðarleg orka og tími stjórnenda félagsins hefur farið í að bregðast við fyrirvaralitlum breytingum og inngripum stjórnvalda á rekstrarumhverfi bæði ferðaþjónustu og bílgreinarinnar og með hreinum ólíkindum hvernig stjórnvöld hafa farið fram í þeim efnum.“ Þar er vísað í 66% hækkun vörugjalds á bifreiðar auk annarra breytinga á gjaldtöku hins opinbera af rekstri og kaupum ökutækja sem tóku gildi um síðustu áramót. Sjá einnig Biðja stjórn­völd um „lág­marks­kurteisi“ Höldur varaði við breytingunum og sagði að neikvæðar afleiðingar yrðu margvíslegar, m.a. orðsporshnekkir erlendis, gríðarlegur kostnaður við utanumhald kílometraskattsins og um eða yfir 20% hækkun á verði nýrra bensín- og díselbíla sem leiða myndi til aukins verðbólguþrýstings og þar með áframhaldandi hárra vaxta. „Stjórnvöld hlustuðu ekkert á þær viðvaranir hagsmunaaðila og keyrðu málið í gegn án nokkurra breytinga. Því miður er staðan sú að allar helstu viðvaranir hafa ræst. Hefðu stjórnvöld betur mátt hlusta á greinina og þá reynslu sem þar býr.“ Draga úr framlagi til samfélagslegra verkefna Félagið segist leggja mikið upp úr samfélagslegri ábyrgð og bendir í þeim efnum á að það sé með samninga við yfir 100 íþróttafélög á landinu auk þess að styðja við fjölda menningarviðburða um allt land. „Það er hins vegar engin launung að með auknum inngripum og álögum stjórnvalda sem og áframhaldandi háu vaxtastigi þá þarf að draga saman seglin í þessum efnum á næstu misserum og er það miður.“ Leggja áherslu á bætta nýtingu fremur en stækkun flotans Höldur segir að bílafloti félagsins hafi aukist óverulega í fyrra ólíkt árunum á undan en áhersla hafi verið lögð á að halda svipuðum bílaflota og bæta frekar nýtingu hans. Á árinu 2026 verði lögð áhersla á að bæta nýtingu flotans enn frekar. Félagið keypti bifreiðar fyrir 10,4 milljarða króna í fyrra og seldi bíla fyrir um 5 milljarða. Bílafloti Hölds var bókfærður á 39 milljarða króna í lok síðasta árs. Um áramót voru um 9% af flota félagsins rafmagnsbílar og um 18% tengiltvinnbílar bílar. Gera áætlanir ráð fyrir að á þessu ári muni hlutfall rafbíla hækka í um 13% og tengiltvinnbíla í 19%. Steingrímur Birgisson er forstjóri bílaleigunnar en hann er jafnframt stærsti hluthafi félagsins með 43% eignarhlut.

Share this article