- What: Starbucks opens new location in Kringlan
- Impact: No direct impact on security
Starbucks, Reitir og Kringlan hafa undirritað samning um opnun nýs Starbucks-kaffihúss í Kringlunni í september næstkomandi. Kaffihúsið verður stærsta Starbucks-kaffihúsið á Íslandi, en fyrir eru tvö kaffihús keðjunnar í miðborg Reykjavíkur. Starbucks opnaði kaffihús að Laugavegi 66 í júlí 2025. Nýja kaffihúsið verður staðsett á fyrstu hæð, fyrir framan verslanir Hagkaups, Epal og Meba. Kaffitár var þar áður með kaffihús en því var lokað 31. maí síðastliðinn. Rýmið verður 135 fermetrar og þar verða sæti fyrir allt að 45 gesti. Framkvæmdir hefjast á næstu dögum. Rekstur Starbucks-kaffihúsanna á Íslandi er í höndum Berjaya Coffee Iceland ehf., dótturfélags malasíska fyrirtækisins Berjaya Food International. „Með komu Starbucks í Kringluna bætist enn einn spennandi valkosturinn við þá öflugu flóru kaffihúsa og veitingastaða sem fyrir eru í Kringlunni, þar á meðal á Kúmen, upplifunar- og mathöllinni okkar. Starbucks er alþjóðlegt vörumerki sem leggur sérstaka áherslu á kaffi og tengsl milli fólks. Þau gildi falla vel að okkar eigin gildum og við hlökkum mikið til að bjóða gestum Kringlunnar upp á þessa viðbót,“ segir Inga Rut Jónsdóttir , framkvæmdastjóri Kringlunnar.