- What: Investigation into a healthcare malpractice case in Iceland
- Impact: Healthcare workers and institutions are involved
Innlent | mbl | 23.7.2026 | 14:15 Rannsókn mála í heilbrigðisþjónustu í lausu lofti Helga Rósa segir að heilbrigðisstarfsmenn séu í viðkvæmri stöðu og að verklag þurfi að vera skýrt ef upp komi atvik sem þurfi að rannsaka. mbl.is/Eyþór Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki „Við hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga höfum verið að benda á akkúrat þetta, að það geta ekki tvö yfirvöld verið að rannsaka sama mál á sama tíma,“ segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Helga Rósa viðrar áhyggjur sínar við blaðamann mbl.is eftir vendingar í máli hjartalæknisins Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, en Héraðsdómur Reykjaness vísaði frá máli héraðssaksóknara á hendur honum og byggði niðurstöðu sína á því að Skúla hefði þegar verið refsað þegar landlæknir svipti hann lækningaleyfi. Skúli Tómas Gunnlaugsson var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 2019. Frétt af mbl.is Ákæru á hendur Skúla vísað frá Frétt af mbl.is Skoða þarf úrskurðinn í samræmi við þrjú skilyrði Heilbrigðisstarfsmenn í viðkvæmri stöðu Að sögn Helgu eru heilbrigðisstarfsmenn í mjög viðkvæmri stöðu og mikilvægt sé að vanda til verka og hafa verklag skýrt. Hún segir tilgang rannsókna embættis landlæknis yfirleitt vera að komast að því hvað gerðist og gera í kjölfarið ráðstafanir til að slík atvik endurtaki sig ekki. „Flestu heilbrigðisstarfsfólki er kennt að vilja skoða hvað fór úrskeiðis án þess að vera hrætt við það að vera sótt til saka,“ segir Helga. Verklag við rannsókn atvika ekki skýrt Helga tekur fram að skipa hafi átt starfshóp í kjölfar þess að lögum um landlækni og lýðheilsu var breytt árið 2023, vegna ítrekaðra ábendinga og umsagna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Starfshópurinn átti að skoða hvernig staðið yrði að rannsókn mála varðandi atvik í heilbrigðisþjónustu. „Það átti að skoða hver ætti að rannsaka hvað á hvaða tíma og ákveða verklagið í kringum það hver ætti réttinn þegar rannsaka ætti slík mál. Þessi starfshópur hefur ekki enn verið skipaður og nú hefur í tvígang komið upp mál þar sem hjúkrunarfræðingar eru með stöðu sakbornings og þá má spyrja sig hvernig verklagi var háttað í þeim málum,“ segir Helga. Frétt af mbl.is „Búið að eyðileggja líf þriggja hjúkrunarfræðinga“ „Við erum í svo rosalega viðkvæmri stöðu. Við erum að sinna deyjandi fólki og á hvaða tímapunkti manneskjan deyr, það er svo auðvelt að gera slíka hluti tortryggilega. Nógu erfitt og flókið er starfsumhverfið okkar fyrir með undirmönnun og álagi að þetta bætist við,“ segir Helga. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vin Diesel undirbýr lokakafla Fast & Furious Frá Víkingi til Akureyrar Rannsókn mála í heilbrigðisþjónustu í lausu lofti Halla: „Mjög slæm tíðindi“ „Ég er frekar hvatvís og þarf að passa mig“ Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Velferðin þarf verðmætasköpun Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Nátttröllið í úkraínska hernum Ákæru á hendur Skúla vísað frá Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Varað við vindi Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Vin Diesel undirbýr lokakafla Fast & Furious Frá Víkingi til Akureyrar Rannsókn mála í heilbrigðisþjónustu í lausu lofti Halla: „Mjög slæm tíðindi“ „Ég er frekar hvatvís og þarf að passa mig“ Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Moskító á undanhaldi á Íslandi Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Varað við vindi Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá