- What: Road construction on Reykjanesbraut
- Impact: Causes traffic restrictions and detours
Horft í austurátt eftir Reykjanesbraut, skammt frá afleggjaranum inn á Vatnsleysuströnd.RÚV / Ragnar Visage Vegagerðin vekur athygli á því að á morgun, föstudag, verður unnið að malbikun á Reykjanesbraut í austurátt fram hjá Vatnsleysustrandarvegi. Vegurinn verður því þrengdur í eina akgrein fram hjá vinnusvæðinu og lokað verður inn á Reykjanesbraut frá Vatnsleysustrandarvegi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir frá klukkan átta í fyrramálið til klukkan átta annað kvöld. Á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is , segir annars að viðgerðir og aðrar vegaframkvæmdir eigi sér nú stað víða um land þessa dagana. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.