Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Útihátíðarstemning verður víða um land

Read Full Article →

Innlent | mbl | 24.7.2026 | 16:50 Þetta er að gerast um helgina Hjarta Hafnarfjarðar, Bræðslan og Mærudagar eru á meðal þeirra hátíða sem finna má á landinu um helgina. Samsett mynd mbl.is/Egill Aaron/Hafþór Hreiðarsson/Ljósmynd/Al­dís Fjóla Borg­fjörð Ásgeirs­dótt­ir Setja bókamerki Sannkölluð útihátíðarstemning verður víða um land nú um helgina, sem verður undir­löguð af tónlist og miklum mannfögnuði. Á Borgarfirði eystra er bærinn þéttsetinn vegna Bræðslunnar, Mærudagar fara fram með pompi og prakt á Húsavík, Trilludagar á Siglufirði, Eldur í Húnaþingi á Hvammstanga og Reykholtshátíðin í Borgarfirði. Í Hafnarfirði hefur Hjarta Hafnarfjarðar sömuleiðis stækkað ár frá ári. Frétt af mbl.is Á annan tug útihátíða um versló Alltaf uppselt síðan 2008 Á Borgarfirði eystra hefur verið bongóblíða undanfarnar vikur og segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, Bræðslustjóri, tjaldsvæðið orðið vel þéttsetið. Að sögn Áskels verða hátíðartónleikar í kvöld þar sem Karlakórinn Heimir kemur fram ásamt Óskari Péturssyni og Guðrúnu Gunnarsdóttur. Þá verða einnig svokallaðir off-venue tónleikar í félagsheimilinu Fjarðarborg síðar í kvöld. „Svo er Bræðslan sjálf, hinir eiginlegu Bræðslutónleikar, á morgun,“ segir Áskell. Er þetta í 21. sinn sem Bræðslan er haldin og hefur uppselt verið á hátíðina hvert einasta ár síðan 2008. „Við erum alltaf með sama miðafjöldann til sölu. Við erum löngu búin að ákveða að við viljum ekki fá of marga í hús til þess að allir geti notið sín,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson Bræðslustjóri. mbl.is/Arnar „Við erum alltaf með sama miðafjöldann til sölu. Við erum löngu búin að ákveða að við viljum ekki fá of marga í hús til þess að allir geti notið sín.“ Um þúsund manns eru með armbönd á Bræðsluna þegar allt er talið, að sögn Áskels, en auk þess hefur fjöldi fólks komið sér fyrir í bænum og á tjaldsvæðum. Sumir hafa jafnvel komið sér fyrir í görðum heimamanna. „Margir eru með tengingar í fjörðinn. Þetta er eins og lítið ættarmót.“ Frétt af mbl.is Aldrei á Bræðsluna Fjölbreytt dagskrá á Húsavík Á Húsavík er einnig mikið um að vera á bæjar- og fjölskylduhátíðinni Mærudögum, en formleg dagskrá hátíðarinnar hófst í dag eftir fjölda viðburða í vikunni. Guðrún Huld Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Mærudaga, segir hátíðina hafa vaxið með hverju árinu og nefnir að meðal þess sem bíði gesta um helgina séu froðurennibraut, krakkahlaup, barnafjör á bryggjunni, dansatriði, tónlistaratriði frá nemendum Tónlistarskóla Húsavíkur, mótorhjólasýning og tölvuleikamót, svo eitthvað sé nefnt. Á morgun taka svo við fjögurra klukkustunda Mærudagstónleikar þar sem fram koma tónlistarmenn frá Húsavík og Norðurlandi. Aron Can og Bríet slá svo botninn í tónleikahaldið áður en flugeldasýning lýkur kvöldinu. Frá Mærudögum á Húsavík árið 2023. mbl.is/Hákon „Allt er þetta gjaldfrjálst. Þetta samanstendur allt af samtakamætti fyrirtækjanna á Húsavík sem gerir þetta að veruleika, að halda svona bæjarhátíð,“ segir Guðrún. Þá er mikil bjartsýni fyrir veðrinu: „Ég er búin að segja að hér verði geggjað veður alla helgina og ef það dropar eða það verða einhverjar kuldaspár þá get ég alltaf sagt að við erum Íslendingar og við kunnum að klæða okkur.“ Líðan gesta mikilvægari en mikil aðsókn Í Hafnarfirði hefur Hjarta Hafnarfjarðar sömuleiðis farið vel af stað og segir Páll Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Bæjarbíós, að mætingin hafi verið gríðarlega góð. „Þetta er bara búið að vera dásamlegt og hefur allt farið fallega og vel fram,“ segir Páll. Ekki liggja fyrir tölur um fjölda gesta í ár en Páll telur mætinguna vera á pari við síðasta ár, þegar um 65 þúsund manns sóttu hátíðina. Hann segir hátíðina hafa stækkað hratt á undanförnum árum. Á sjöunda ári hafi gestir verið um 16 þúsund, á því áttunda 34 þúsund og í fyrra 65 þúsund. Hjarta Hafnarfjarðar hefur vaxið ört síðustu ár. mbl.is/Egill Aaron Þrátt fyrir mikla aðsókn sé þó ekki markmiðið að troða sem flestum inn á hátíðarsvæðið. „Þetta er ekki keppni um hvað það séu margir heldur hvernig þeim líður,“ segir Páll. Þeir listamenn sem koma fram í Hafnarfirði um helgina eru Aron Can, Birnir, Emmsé Gauti, Jóa P, Króli, Sprite Zero Klan og Patrik. Mikil stemmning var hjá Hafnfirðingum á Hjartanu í fyrra. mbl.is/Egill Aaron Sjómannastemmning á Trilludögum Á Trilludögum, bæjarhátíð Siglufjarðar, sem fer fram á morgun frá klukkan 10 til 16, verður sannkölluð sjómannsstemning. Gestum verður boðið í sjóstöng út á fjörðinn auk þess sem boðið verður upp á fríar siglingar. Þá verður staðið vaktina við grillið og öllum boðið að smakka dýrindis fisk beint úr hafi. Auk þess verða hoppukastalar á svæðinu og mun tónlist óma af Trillusviðinu allan daginn, að því er fram kemur á vef Fjallabyggðar. Opnunartónleikar Reykholtshátíðar í kvöld Reykholtshátíð, tónlistarhátíð sem leggur áherslu á klassíska tónlist frá 18. og 19. öld, hefst í kvöld með opnunartónleikum klukkan 20. Um er að ræða eina elstu og virtustu tónlistarhátíð landsins, sem haldin er síðustu helgina í júlí ár hvert í Reykholti. Á morgun fara svo fram fjölskyldutónleikar Reykholtshátíðarinnar klukkan 15 auk söng- og kammertónleika hátíðarinnar klukkan 20. Reykholtshátíð lýkur svo með lokatónleikum á sunnudaginn klukkan 16. Á meðal þeirra sem koma fram á Reykholtshátíð eru feðgarnir og söngvararnir Jóhann Kristinsson og Kristinn Sigmundsson, Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran og hljómsveitin Duo Stemma. Rottweiler hundar á Húnaþingi Þá má ekki gleyma útihátíðinni Eldi í Húnaþingi sem fer fram á Hvammstanga. Ýmsir viðburðir hafa verið haldnir alla vikuna en í kvöld fara svo fram föstudagstónleikar Eldsins í félagsheimilinu á Hvammstanga. Þar koma fram Friðrik Dór, Herbert Guðmundsson, XXX Rottweiler og Love Guru. Dagskráin verður svo fjölbreytt fyrir gesti á morgun. Á vef útihátíðarinnar kemur fram að boðið verði upp á sápurennibraut, prjónakeppni, sápubolta og fjörupartý, svo eitthvað sé nefnt, áður en hljómsveitirnar Papar og Sprite Zero Klan loka kvöldinu á lokadansleik hátíðarinnar, að því er kemur fram á vef bæjarhátíðarinnar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Útihátíðarstemning verður víða um land Kristinn Freyr kominn til Aftureldingar Bókasöfnin farin að færa sig upp á skaftið Hleypur 400 kílómetra yfir Sviss Sá besti þarf að fara í aðgerð Umræðan Krafa um sanngjarnar leikreglur Stigmögnunarhættan vegna Pútíns Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málarar með tárin í augunum í vætunni Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót Ófullnægjandi ástand á Hraunbúðum Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Átti bágt með að trúa eigin augum Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Mistök Vísis og þrettán daga þögn Mótorhjólaslys í Kópavogi Talið að bifhjólinu hafi verið ekið utan í vegrið Byggja upp fjarskiptainnviði til bráðabirgða Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stúlkan fannst heil á húfi „Þetta fólk er vont“ Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum „Tommi og Jenni“ í lifanda lífi á Framnesvegi Myndskeið: Braut bílrúðu með hamri Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Nýjast á mbl.is » Útihátíðarstemning verður víða um land Kristinn Freyr kominn til Aftureldingar Bókasöfnin farin að færa sig upp á skaftið Hleypur 400 kílómetra yfir Sviss Sá besti þarf að fara í aðgerð Umræðan Krafa um sanngjarnar leikreglur Stigmögnunarhættan vegna Pútíns Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ófullnægjandi ástand á Hraunbúðum Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Velferðin þarf verðmætasköpun Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Átti bágt með að trúa eigin augum Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Mistök Vísis og þrettán daga þögn Mótorhjólaslys í Kópavogi Talið að bifhjólinu hafi verið ekið utan í vegrið Byggja upp fjarskiptainnviði til bráðabirgða Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stúlkan fannst heil á húfi „Þetta fólk er vont“ Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum „Tommi og Jenni“ í lifanda lífi á Framnesvegi Myndskeið: Braut bílrúðu með hamri Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal

Share this article