Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fimm á sjúkrahúsi eftir árekstur á Grindavíkurvegi

Read Full Article →

Bílslys varð á Grindavíkurvegi síðdegis og voru fimm fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Þetta segir Gunnar Jón Ólafsson, bakvaktsstjórnandi hjá Brunavörnum Suðurnesja. Hann segir áreksturinn hafa verið nokkuð harðan. Þrír sjúkrabílar voru sendir á staðinn auk dælubíls og lögreglu. Útkallið barst laust eftir hálf fimm. Vísir greindi fyrst frá. Daníel Karlsson, varðstjóri hjá slökkviliði Grindavíkur, segir að slys á fólki hafi ekki verið alvarleg. Annar bíllinn hafi verið á leið frá Bláa lóninu og ekið í veg fyrir hinn sem var á leið til Grindavíkur. Ferðamenn voru í öðrum bílnum. „Þetta virðist hafa sloppið nokkuð vel,“ segir Daníel sem telur þó að bílarnir séu ónýtir. Þeir voru fluttir burt með kranabíl. Talsverðar annir hafa verið hjá Brunavörnum Suðurnesja í dag. Vinnuslys varð í sementsverksmiðju með þeim afleiðingum að einn fótbrotnaði. Þá hefur mikið verið um veikindi á svæðinu. Gunnar Jón segir álagið nokkuð óvenjulegt. „Þetta er búið að vera svolítil törn.“

Share this article