Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Yfir 220 þúsund þurft að flýja vegna eldanna

Read Full Article →

Gríðarlegir gróðureldar hafa breiðst út í Frakklandi og á Spáni og samtals hafa yfir 220 þúsund manns þurft að flýja heimili sín. Spánn lýsti yfir neyðarástandi vegna eldanna á fimmtudagskvöld. Fyrir utan höfuðborgina Madríd náðu tveir stórir eldar saman og sá þriðji var ekki langt undan. Talið er að þetta séu verstu gróðureldar sem hafa geisað á svæðinu nálægt höfuðborginni. Búist er við hvassari vindátt síðar í dag og stjórnvöld hafa lýst yfir áhyggjum af því að vindurinn gæti hindrað slökkvistarf og aukið eldana enn frekar. Í Frakklandi suðvestanverðu var fólk beðið um að yfirgefa Cap Ferret-nesið. Þar hafa 190 ferkílómetrar orðið eldinum að bráð. Þúsundir hafa flúið úthverfi Bordeaux-borgar vegna elda á svæðum í kringum hana. Evrópusambandið hefur sent báðum ríkjum liðsauka til að berjast við eldana og er von á frekari aðstoð og tækjabúnaði í dag.

Share this article