Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki innstæða fyrir launahækkunum

  • What: No support for wage increases in upcoming labor agreements
  • Impact: Discussion around economic development and public vs. private sector roles
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.7.2026 | 12:35 Ekki innstæða fyrir launahækkunum Starfsmenn verktaka taka sér hádegishlé í Reykholti á vinnusvæði Nýs Landspítala við Hringbraut. Slaki eru nú á byggingargeiranum á Íslandi. Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tryggvi Þór Herbertsson, stjórnarformaður hjá Qair Iceland H2 og fyrrverandi prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, segir ekki vera innstæðu fyrir raunlaunahækkunum í komandi kjarasamningum. Almenn þróun efnahagsmála á Íslandi sé áhyggjuefni. Tilefnið er umræða um fjölgun starfa milli ára en eins og Morgunblaðið hefur fjallað um er hún að mestu leyti tilkomin vegna ráðninga hjá hinu opinbera. „Þetta endurspeglar vel hvernig verðmætasköpunin er að þróast hér á Íslandi og hvernig einkageirinn stendur í stað á meðan sá opinberi vex. Það er eins og menn geri sér ekki grein fyrir því hvar verðmætin verða til og að skapa þurfi verðmæti til þess að reka samfélagið. Jafnframt endurspeglar þetta tregðu stjórnvalda til að styðja atvinnulífið, veita leyfi í orkumálum, hvetja til erlendrar fjárfestingar og annað slíkt,“ segir Tryggvi Þór. Afleiðingarnar að birtast Hann segir það farið að reynast þjóðinni dýrkeypt að hið opinbera hafi ekki ýtt meira undir uppbyggingu virkjana og endurbóta á dreifikerfi raforku í landinu. „Það virðist ekki skipta máli hvaða ríkisstjórn er við völd í landinu. Alltaf sama kyrrstaðan. Til dæmis virðist Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ekki hafa neinn sérstakan stuðning ríkisstjórnarinnar í þessum málum,“ segir Tryggvi Þór. Spurður hvort uppsagnir vegna tilkomu gervigreindar eigi þátt í að störfum fjölgar hægt á einkamarkaði segir Tryggvi Þór að önnur hlið sé á málinu. „Þetta aðgerðaleysi bitnar á samkeppnisstöðu Íslands hvað snertir gervigreind en á því sviði eru að verða stórstígar framfarir. Við erum sem þjóð í þeirri sérstöku stöðu að geta verið með gagnaver sem þjálfa gervigreindina og þar geta myndast störf á móti. Nefna mætti fleiri iðngreinar sem gætu verið að þróast hraðar ef stjórnvöld hefðu annað viðhorf til verðmætasköpunar, til dæmis landeldi og framleiðslu rafeldsneytis.“ Dylur atvinnuleysið Að mati Vinnumálastofnunar var 4% atvinnuleysi í júní. Tryggvi Þór segir aðspurður þetta enn eina vísbendinguna um að atvinnuleysi sé að aukast á Íslandi en síðustu áratugi hefur atvinnuleysi hér á landi almennt verið mun minna en gerist til dæmis víðast í Evrópu. Við það bætist, að sögn Tryggva Þórs, að hátt hlutfall farandverkafólks á Íslandi hefur í för með sér að margir erlendir ríkisborgarar flytja úr landi þegar harðnar á dalnum, ekki síst í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Greiningu á atvinnuþátttöku beri að sama brunni en hún fari líka lækkandi á Íslandi. Með framangreint í huga telur Tryggvi Þór að ekki sé innstæða fyrir raunlaunahækkunum í komandi kjarasamningum en verðbólgan er nú aftur á uppleið. „Við horfum fram á kaupmáttaraukningu þrátt fyrir aukið atvinnuleysi og minni vinnumarkaðsþátttöku. Það er ljóst að við erum komin að einhvers konar endimörkum hvað varðar hækkun raunlauna og sjáum hvernig atvinnulífið kvartar undan kostnaði vegna raunlauna. Þá eru mörg stærstu fyrirtæki landsins rekin með tapi, eins og til dæmis Icelandair enda þótt tap flugfélagsins stafi nú að mestu leyti af eldsneytisverðinu. Í mörgum atvinnugreinum er orðið mjög erfitt að reka fyrirtæki á Íslandi út af launakostnaði,“ segir Tryggvi Þór. Skapar verðmæti í framtíðinni Takmörkuð fjárfesting í atvinnuvegunum sé líka hættumerki. „Fólk verður að gera sér grein fyrir því að langtímahagvöxtur byggist á fjárfestingu í dag en hún skilar ekki hagvexti fyrr en eftir einhver ár. Því þarf stöðugt að huga að fjárfestingunni. Við sjáum að stjórnmálamenn í öðrum löndum hvetja til fjárfestingar og styðja fyrirtækin í því að laða að erlenda fjárfestingu. Þannig að fjárfesting er aflvaki hagvaxtar.“ Mikil umskipti urðu í íslenska hagkerfinu 2015 þegar þáverandi ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerði upp við kröfuhafa föllnu bankanna. Tryggvi Þór segir aðspurður að síðan þetta góðæristímabil hófst hafi borið á því viðhorfi að nóg sé til og að málið snúist aðeins um að endurúthluta gæðum. „Það viðhorf að verkefnið sé að skipta gæðunum upp á nýtt en ekki huga að framtíðarvexti felur feigðina í sér,“ segir Tryggvi að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Akureyskt ofnæmisapp gerir garðinn frægan Sumarbústaður alelda við Suðurlandsveg Ekki innstæða fyrir launahækkunum Framlengir í Manchester Boðar til nýs neyðarfundar Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Eldur í smáhýsi úti á Granda Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum „Það er bara algjört hrun“ Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Vilja byggja upp nýtt hverfi Þegar Ísland sótti ekki um Beinbrotnaði við fallið af svölunum Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Akureyskt ofnæmisapp gerir garðinn frægan Sumarbústaður alelda við Suðurlandsveg Ekki innstæða fyrir launahækkunum Framlengir í Manchester Boðar til nýs neyðarfundar Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Eldur í smáhýsi úti á Granda Ekki innstæða fyrir launahækkunum Nýtt innflutningsgjald í bígerð Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum „Það er bara algjört hrun“ Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Vilja byggja upp nýtt hverfi Þegar Ísland sótti ekki um Beinbrotnaði við fallið af svölunum Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá

Share this article