Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kveðja frá Spáni

Read Full Article →

Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu ákvað undirrituð að eyða nokkrum dögum á Spáni til að upplifa daglegt líf í Evrópusambandsríki á eigin skinni. Veðurfar hér er með ágætum en þó nokkrum gráðum ofaukið. Örlítil hitatilfærsla yfir hásumarið væri upplagt samningsmarkmið fyrir Ísland og ætti að vera auðsótt. Verðlag er einnig hagstætt hér um slóðir og stakk ung samferðarmanneskja upp á búferlaflutningum hingað af þeim sökum. Er virkilega hægt að gera meira fyrir minna hér í sambandinu eins og haldið hefur verið á lofti? Hugmyndin kitlaði. Ég kannaði því atvinnumöguleika mína hér syðra og varð fyrir nokkrum vonbrigðum. Atvinnuleysi er 11% og 24% meðal ungs fólks. Laun eru helmingi lægri en gengur og gerist á Íslandi. Ætli Spánverjum þyki allt hér ódýrt? Ég hef einnig smávægilegar áhyggjur af stöðu innviða hér á meginlandinu. Rafmagn er kostnaðarsamt, vatnsskortur tíður og netsamband stopult. Ef þessi pistill skilar sér hefur það ekki verið fyrir öfluga fjárfestingu Spánverja í netinnviðum. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að lægsta verðlag í Evrópu finnst í umsóknarríkjum sambandsins þar sem verðlag er um 30-40% lægra en í ESB! Eftir hverju eru þau þá að slægjast? Hlutfallslegt verðlag getur svo sem breyst. Ísland var ódýrara en ESB árið 2009. Í minningunni var það þó ekki ár hins sterka kaupmáttar. Eftir nokkra yfirlegu er niðurstaðan sú að Íslendingum hafi þrátt fyrir allt tekist nokkuð vel til að byggja upp sterkan vinnumarkað og öfluga innviði, sem ekki má vanmeta og brýnt er að varðveita. Hvort sem horft er til íslensks verðlags eða loftslags er fátt svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Íslenska verðlagið er vitnisburður um sterkan kaupmátt Íslendinga og sannast sagna verður léttir að komast aftur heim í svalan andvarann. Greinin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article