25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri er einnig í haldi. Fólkið var handtekið eftir að lögregla fékk upplýsingar um að verið væri að flytja sprengju með bíl. Sprengjan var háþróuð, líkt og það er orðað í yfirlýsingu írsku lögreglunnar, sem telur að fólkið hafi ætlað að nota hana í sprengjuárás. Grunur leikur á að hana hafi átt að festa undir bíl í þeim tilgangi að sprengja hann upp. Sprengjan fannst í rassíu lögreglunnar sem beindist gegn lýðveldissinnum. Lögreglan segir fámennan minnihluta enn vera ósáttan við nærri þrjátíu ára samkomulag sem batt enda á blóðug átök milli írskra þjóðernissinna og sambandssinna.
This article describes a physical security threat involving a sophisticated explosive device intended for use in a vehicle-borne improvised explosive device (VBIED) attack. The threat was neutralized following a law enforcement operation targeting dissident republicans in Ireland. The article provides no technical details on a software vulnerability, CVSS score, affected versions, or patches, focusing instead on the law enforcement incident.