Innlent | mbl | 25.7.2026 | 17:50 Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu á Bræðslunni Á Borgarfirði eystra í dag. Ljósmynd/Bræðslan Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Lögregla og björgunarsveitarmenn eru í viðbragðsstöðu á Borgarfirði eystra þar sem bæjar- og tónlistarhátíðin Bræðslan fer fram um helgina. Mikið rok og rigning var í gær sem hafði þær afleiðingar í för með sér að tjöld fóru að fjúka. Þetta segir Áskell Heiðar Ásgeirsson Bræðslustjóri í samtali við mbl.is. „Við erum með frábæra björgunarsveit hérna og lögreglan er með okkur í liði. Við erum öll að hjálpast að hérna,“ segir Áskell. Hann sagði talsvert rok vera á staðnum en enga rigningu þegar blaðamaður ræddi við hann síðdegis í dag. Áskell er þó bjartsýnn fyrir tónleika kvöldsins, en þeir fara fram innandyra. Hann segir tónleikahald hafa gengið vel í gær. Tjaldsvæðið var þétt setið á Borgarfirði eystra í gær. Ljósmynd/Hlynur Sveinsson Einhverjir pökkuðu saman og fóru „Það versnaði verulega veðrið hérna í gærkvöldi. Það kom bæði rok og rigning. Að sjálfsögðu var það leiðinlegt fyrir þau sem voru í tjöldum en björgunarsveit og lögregla hjálpuðust að við að aðstoða þá sem lentu í vandræðum í tjöldum í nótt.“ „Þegar tjöld fóru að fjúka og þess háttar, eins og gerist í roki og rigningu. Það voru einhverjir sem fengu að færa tjöldin sín inn í hús og aðrir pökkuðu saman og fóru bara eins og gengur og gerist í svona veðri,“ segir Áskell. „En við erum búin að reyna að gera þær ráðstafanir sem hægt er að gera til að hjálpa öllum til þess að geta verið áfram sem vilja. Og nú er búið að virkja allt það viðbragð sem við höfum til að bregðast við þessu. Þetta er það eina sem við ráðum ekki við, veðrið.“ Áskell Heiðar Ásgeirsson Bræðslustjóri. mbl.is/Kristinn Magnússon Bjartsýnn fyrir kvöldinu Áskell segist aðspurður ekki lofa neinu um það hvort veðrið eigi að vera skárra í kvöld en í gærkvöldi. „Vindurinn er ekkert að ganga niður en við erum allavega vel undirbúin og það er búið að funda með öllum viðbragðsaðilum og fara yfir svo hvað við getum gert til þess að enginn lendi í hrakningum í kvöld.“ Þannig kvöldið leggst bara vel í ykkur? „Jájá, þetta leggst mjög vel í okkur og það er góð stemming hjá fólki en auðvitað breytir þetta aðeins plönum, sérstaklega þegar það er búið að vera bongóblíða í þrjár vikur, þá bregður mönnum aðeins við.“ „Þetta er ekkert sem við höfum ekki séð áður og við tökumst á við þetta saman og hjálpumst að við að klára þetta með tjöldin. Það lítur allt mjög vel út með tónleikana sem eru auðvitað innandyra og þetta hefur engin áhrif á þá beinlínis,“ segir Bræðslustjórinn að lokum. Frá Bræðslunni. Ljósmynd/Hlynur Sveinsson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Veðurspáin slekkur vonarneista en ekki gróðurelda HM-stjarnan hefur fundið nýjan áfangastað Hraður vöxtur reynir á innviðina Fram - Grindavík/Njarðvík, staðan er 0:1 Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Þegar Ísland sótti ekki um Ekki innstæða fyrir launahækkunum „Það er bara algjört hrun“ Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Gular viðvaranir vegna hvassviðris Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Feðgar greindust báðir með hvítblæði Tækifærið er núna fyrir fjölskyldufólk á Þjóðhátíð Skúr á Laugavegi 1 fer á Þingeyri Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Veðurspáin slekkur vonarneista en ekki gróðurelda HM-stjarnan hefur fundið nýjan áfangastað Hraður vöxtur reynir á innviðina Fram - Grindavík/Njarðvík, staðan er 0:1 Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Mikill styrkur í sjálfstæðinu fyrir Ísland „Það er bara algjört hrun“ Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Gular viðvaranir vegna hvassviðris Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Feðgar greindust báðir með hvítblæði Tækifærið er núna fyrir fjölskyldufólk á Þjóðhátíð Skúr á Laugavegi 1 fer á Þingeyri Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá