Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fylla í holu á golfmarkaði

  • What: New store focuses on second-hand golf equipment
  • Impact: Store in Reykjavik aims to capitalize on growing interest in golf
Read Full Article →

Sportbásinn fagnar eins árs afmæli um þessar mundir en um er að ræða verslun sem sérhæfir sig í umboðssölu á notuðum íþróttavörum. Markmiðið er að gefa búnaðinum nýtt líf, en viðskiptavinir geta komið með vörur til sölu og fá greitt þegar þær seljast. Verslunin, sem staðsett er í Faxafeni í Reykjavík, er rekin af þeim Hlyni Snæ Stefánssyni og Zakaríasi Friðrikssyni. Í viðtali við Viðskiptablaðið segir Hlynur Snær að reksturinn hafi farið from úr vonum þeirra og væntingum. Hlynur segir að Sportbásinn hafi meðal annars séð tækifæri í því að bjóða upp á umboðssölu á golfvörum, þar sem fáir aðilar hafi boðið upp á slíka þjónustu. Hann bendir sérstaklega á að fyrirkomulagið komi sér vel fyrir nýja kylfinga, en á seinustu misserum hefur borið verulega á vaxandi golfáhuga hjá landsmönnum um land allt. Hlynur segist verða aukningarinnar var í daglegum rekstri verslunarinnar. „Þetta er bara rosalegt, það eru allir byrjaðir í golfi. Ég er búinn að vera í golfi síðan ég var þriggja ára og það er bilað að horfa á þessa aukningu,” segir hann. Hann bendir á að upphafskostnaður fyrir byrjendur í golfi geti verið umtalsverður. Með umboðssölu geti þeir sem stígi sín fyrstu skref í sportinu bæði dregið úr þeim kostnaði, og jafnframt stuðlað að aukinni endurnýtingu með því að kaupa notað fremur en nýtt. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article