Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rannsaka andlát stúlku sem lést eftir tilraunagenameðferð

  • What: A 10-year-old girl died after experimental gene therapy
  • Impact: Controversy over unreported clinical trial
Read Full Article →

Sex ára kínversk stúlka lést um viku eftir að hún gekkst undir tilraunakennda genameðferð í fyrra. Læknadeild Jiao Tong-háskólans í Shanghai hefur andlátið til skoðunar en talið er að það hafi viljandi ekki verið minnst á það í birtum vísindagreinum um meðferðina. Meðferðin fólst í því að þúsundum milljarða vírusa var sprautað í mænu stúlkunnar í von um að þeir næðu til heilans. Þetta átti að laga sjaldgæfan erfðagalla sem veldur skerðingu í vitsmunaþroska. Grein taugavísindamannsins Zilong Qiu sem fjallaði um tengdar rannsóknir á dýrum birtist í Nature og þar var hvergi minnst á stúlkuna. Jiao Tong-háskólinn segist hafa skipað starfshóp til að rannsaka málið. „Læknadeildin hefur ávallt lagt mikla áherslu á aðferðafræði og heilindi í vísindarannsóknum. Hún setur sig alfarið upp á móti rannsóknum á sviði læknisfræði sem brjóta í bága við siðareglur um slíkar rannsóknir,“ segir í yfirlýsingu frá skólanum. Foreldrar stúlkunnar greiddu yfir 100 milljónir króna fyrir tilraunameðferðina og talið er að þeir hafi ekki verið upplýstir um áhættuna sem hún hafði í för með sér. Yfirlýst markmið Qiu var að bjóða upp á erfðatækni sem gæti haft áhrif á heilann og breytt genum í taugafrumum.

Share this article