This article describes a physical vehicle-ramming attack in Berlin, resulting in one fatality and multiple injuries. A suspect with Iranian citizenship has been arrested as a passenger, while the driver, a 21-year-old man with suspected ties to Islamist extremist groups, remains at large and is considered potentially armed. A widespread manhunt involving thousands of personnel is ongoing.
Einn hefur verið handtekinn í tengslum við árásina í gleðigöngunni í Berlín í gær. Frá þessu er greint í þýskum fjölmiðlum. Ekið var inn í mannfjölda með þeim afleiðingum að kona lést og á annan tug særðist. Maðurinn sem var handtekinn er sagður vera með íranskan ríkisborgararétt. Hann sat í farþegasæti bílsins, að því er þýski miðillinn rbb24 greinir frá . Ætla má að ökumannsins sé því enn leitað. 21 árs karlmaður sem talinn er eiga tengsl við öfgahópa íslamista er grunaður um verknaðinn. Þúsundir hafa tekið þátt í víðtækri leit að honum. Lögreglan sagði í morgun að fólk hefði einnig verið stungið í árásinni. Hún varaði við því að maðurinn gæti verið vopnaður.