Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
MEDIUM Attacks Mbl Innlent

Netsvikari herjar á íslenska rithöfunda

  • What: Scam targeting Icelandic authors via social media
  • Impact: Authors may be affected by fraudulent offers
Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.7.2026 | 11:58 Netsvikari herjar á íslenska rithöfunda Húsakynni Rithöfundasambands Íslands eru í Gunnarshúsi við Dyngjuveg. mbl.is/Sigurður Bogi Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Erlendur svikahrappur hefur gert rithöfundasamfélag Íslands að veiðilendum sínum. Notast hann við aðstoð gervigreindar til þess að lofa rithöfundum gulli og grænum skógum og býður þeim þjónustu við að koma bókum þeirra á framfæri erlendis. Í færslu sinni á Facebook deildi Una Margrét Jónsdóttir því að kona að nafni Danielle Kushner hefði sett sig í samband við hana og hrósað mjög bók hennar „Silfuröld revíunnar“. Danielle hafi í sama bréfi tjáð Unu að hún ynni fyrir fyrirtæki sem sérhæfði sig í að kynna höfunda erlendis og bauð henni upp á slíka þjónustu fyrir bók hennar. Í samtali við mbl.is segir Una að í fyrstu hafi verið ánægjulegt að fá slíkt lof fyrir bók sína en strax hafi leikið grunur um að eitthvað gruggugt væri á seyði. Gat ekki útskýrt íslenskukunnáttuna Danielle hafði fyrst samband við Unu fyrir viku eða svo en Unu þótti áhugavert að bréf hennar væru skrifuð á góðri íslensku. Einnig má geta þess að „Silfuröld revíunnar“ hefur einungis verið gefin út á íslensku. Það gæti að sjálfsögðu átt sér eðlilegar skýringar að kona að nafni Danielle Kushner hafi skrifað á svo sannfærandi íslensku en það sem Unu þótti skrítnast var að Danielle virtist skauta fram hjá spurningum hennar um það hvort hún væri búsett á Íslandi. „Það var náttúrulega hugsanlegt að þetta væri Íslendingur sem héti útlendu nafni eða væri búsettur hér á landi og ég spurði hana um það. Ég svaraði henni bara kurteislega og þakkaði hrósið en spurði líka hvort að þessi kynning myndi ekki kosta eitthvað, hún nefndi það ekkert í fyrsta bréfinu,“ segir Una. „Svo fékk ég kurteislegt bréf frá henni til baka þar sem hún sagði að þetta væru tveir kynningarpakkar sem hægt væri að kaupa og nefndi verðið á þeim. En hún hliðraði sér hjá því að svara þessu með íslenskuna.“ Þá kostaði einn pakkinn 395 evrur og annar 653 evrur. Netsvindl orðin auðveldari og ódýrari Una segist ekki vön að lesa gervigreindartexta en fjölskyldumeðlimur hennar sem hún sýndi bréfin hafi fljótlega áttað sig á því að um væri að ræða slíkan. Una segir aldrei hafa staðið til að fara að senda peninga eitt né neitt og hún hafi haft samband við skrifstofu Rithöfundasambandsins vegna gruns síns um að eitthvað væri nú öfugsnúið við hana Danielle Kushner. Þá kom á daginn að um er að ræða netsvindlara sem herjað hefur á að minnsta kosti 20 íslenska rithöfunda undir ýmsum nöfnum, stundum sem Danielle Kushner, stundum sem Clara Hoffman, Lydia Witten eða Lise. Textinn er skrifaður af gervigreind og á býsna sannfærandi hátt. Það er Unu mikilvægt að vekja athygli á netsvikum sem slíkum en á dögum gervigreindarinnar fara slík svik að verða bæði auðveldari og ódýrari í framkvæmd, ásamt því að verða meira sannfærandi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Haaland slær eigið met Netsvikari herjar á íslenska rithöfunda Er sagður vera stuðningsmaður Íslamska ríkisins Lygileg endurkoma Joshua í fyrsta bardaganum eftir bílslysið Halla forseti í heimsókn hjá Völla Snæ og Þóru Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki innstæða fyrir launahækkunum Þegar Ísland sótti ekki um Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Feðgar greindust báðir með hvítblæði Slagviðri á Bræðslunni Lögreglan varar við vindi og úrkomu á Bræðslunni Myndir: Mikil gleði á Mærudögum Þoka á Hornbjargsvita en mikill gestagangur Böggandi þegar Telemakkus kallar Ódysseif „pabba“ 11 milljónum ríkari eftir kvöldið Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Feðgar greindust báðir með hvítblæði Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Þyrlan kölluð út vegna bráðaveikinda Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Nýjast á mbl.is » Haaland slær eigið met Netsvikari herjar á íslenska rithöfunda Er sagður vera stuðningsmaður Íslamska ríkisins Lygileg endurkoma Joshua í fyrsta bardaganum eftir bílslysið Halla forseti í heimsókn hjá Völla Snæ og Þóru Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þegar Ísland sótti ekki um Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Mistök Vísis og þrettán daga þögn Mest lesið Í gær Í vikunni Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Feðgar greindust báðir með hvítblæði Slagviðri á Bræðslunni Lögreglan varar við vindi og úrkomu á Bræðslunni Myndir: Mikil gleði á Mærudögum Þoka á Hornbjargsvita en mikill gestagangur Böggandi þegar Telemakkus kallar Ódysseif „pabba“ 11 milljónum ríkari eftir kvöldið Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Feðgar greindust báðir með hvítblæði Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Þyrlan kölluð út vegna bráðaveikinda Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu

Share this article