Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.7.2026 | 15:15 „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Perla Sól Guðjónsdóttir, Ragna Sól Ragnarsdóttir, Emelía Ósk Kristjánsdóttir og Marta Sonja Maríusdóttir eru strandaglópar á Spáni. Ljósmynd/Aðsend Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Þegar bilun varð á einum neyðarútgangi flugvélar Icelandair, sem leggja átti af stað frá Alicante á Spáni heim til Íslands í nótt, var farþegum sem þegar voru komnir um borð tilkynnt að rýma þyrfti flugvélina af farþegum og farangri og það sem verra er þá var þeim tilkynnt að aðeins helmingur farþega fengi að fara aftur um borð. Þannig voru um 90 Íslendingar skildir eftir á flugvellinum á Alicante. Meðal þeirra 90 eru vinkonurnar fjórar Perla Sól Guðjónsdóttir, Ragna Sól Ragnarsdóttir, Marta Sjonja Maríusdóttir og Emelía Ósk Kristjánsdóttir. Handahófskennt farþegaval Í samtali við mbl.is segir Perla valið á þeim farþegum sem fengu pláss í vélinni heim hafa verið algjörlega handahófskennt. Þær vinkonur hafi átt fjóra miða á sömu pöntun og því hafi engin þeirra fengið miða heim en fjölskylda sem sat nærri þeim á flugvellinum hafi lent í því að aðeins faðirinn hafi fengið miða heim, en ekki hinir í fjölskyldunni. Hann hafi því gefið sitt sæti frá sér. „Við erum 21 árs en erum samt bara einar í útlöndum og vitum ekki neitt, við höfum oft verið í útlöndum en ekki bara við vinkonurnar, heldur með fjölskyldum eða með skóla,“ segir Perla. Hún segir þær ekki hafa fengið neinar upplýsingar fyrir utan staðlaðan tölvupóst sem hjálpaði lítið til. Þær þurftu sjálfar að redda sér hótelherbergi en það tók yfir þrjá klukkutíma og hótelið var klukkutíma í burtu frá flugvellinum. „Við fáum 170 evrur fyrir gistingu og síðan einhverjar 20 evrur upp í ferðakostnað, en bara leigubíllinn frá Alicante-flugvellinum á hótelið kostaði 80 evrur.“ Langt ferðalag fram undan Heimferðin býður svo vægast sagt ekki upp á sambærilega heimferð og flugið frá Alicante til Íslands. Þær fljúga í kvöld frá Alicante til Madrídar, millilenda þar í 10 klukkutíma og þurfa því að finna sér hótel þar líka. Síðan fljúga þær frá Madríd til Amsterdam og millilenda þar í þrjá klukkutíma þangað til þær fá loks að komast aftur heim til Íslands. Fyrir utan aukalegan ferðakostnað þá eru Perla og vinkonur að missa af vöktum sem þær eiga að vera á í dag og á morgun. Tekjutapið segir Perla vera óvelkomið. Þegar blaðamaður mbl.is ræddi við Perlu voru þær vinkonurnar að undirbúa sig undir að leggja af stað á flugvöllinn og í fyrsta legg þessarar löngu og ströngu heimferðar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Bar Jón Pál til grafar Fyrsti sigur Norris á tímabilinu Eyddu ríflega 500 þúsund krónum í gosvél fyrir heimilið Þungt tap í Svíþjóð Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Mikill styrkur í sjálfstæðinu fyrir Ísland Mest lesið Í gær Í vikunni Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Netsvikari herjar á íslenska rithöfunda Lögreglan varar við vindi og úrkomu á Bræðslunni Myndir: Mikil gleði á Mærudögum Þoka á Hornbjargsvita en mikill gestagangur Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Feðgar greindust báðir með hvítblæði Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Þyrlan kölluð út vegna bráðaveikinda Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Nýjast á mbl.is » „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Bar Jón Pál til grafar Fyrsti sigur Norris á tímabilinu Eyddu ríflega 500 þúsund krónum í gosvél fyrir heimilið Þungt tap í Svíþjóð Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Eldur í smáhýsi úti á Granda Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Þegar Ísland sótti ekki um Mest lesið Í gær Í vikunni Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Netsvikari herjar á íslenska rithöfunda Lögreglan varar við vindi og úrkomu á Bræðslunni Myndir: Mikil gleði á Mærudögum Þoka á Hornbjargsvita en mikill gestagangur Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Feðgar greindust báðir með hvítblæði Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Þyrlan kölluð út vegna bráðaveikinda Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu

Share this article