Innlent | mbl | 26.7.2026 | 16:40 Ekkert sem sannaði að konan hefði fengið of mikið morfín Atvikið átti sér stað á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Lögregla rannsakar andlát á hjúkrunarheimili í Eyjum Rannsókn vegna andlátsins hætt „Beðið eftir niðurstöðum úr mörgum rannsóknum“ Bíða eftir frekari gögnum vegna andlátsins Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Þurftu að breyta aðgerðum eftir úrskurð héraðsdóms » Fleiri tengdar fréttir Landsréttur féllst ekki á að úrskurða tvær konur sem störfuðu á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í gæsluvarðhald, en þær voru grunaðar um að gefa íbúa á heimilinu of stóran skammt af morfíni með þeim afleiðingum að hún lést. Atvikið átti sér stað í byrjun þessa árs en úrskurður Landsréttar var kveðinn upp þann 5. febrúar og birtur nú á dögunum. Frétt af mbl.is Rannsókn vegna andlátsins hætt Lögreglustjórinn á Suðurlandi hafði skotið málinu til Landsréttar og krafðist þess að konunum yrði gert að sæta gæsluvarðhaldi, eftir að Héraðsdómur Suðurlands hafnaði þeirri kröfu. Tildrög málsins voru þau að Lögreglan í Vestmannaeyjum fékk tilkynningu þann 28. janúar frá starfsmanni Heilbrigðisstofnunar Suðurlands um að andlát á Hraunbúðum hefði mögulega borið að með saknæmum hætti. Starfsmaðurinn og samstarfskona hennar höfðu annast konuna daginn sem hún lést en hún var í lífslokameðferð og hafði henni verið gefið morfín. Var talið að starfsmenn dvalarheimilisins hefðu af ásetningi gefið hinni látnu of stóran skammt af morfíni með þeim afleiðingum að hún lést skömmu síðar. Engin læknisfræðileg gögn sem styðja frásögnina Í úrskurði Landsréttar kemur fram að engin læknisfræðileg gögn hefðu legið fyrir sem gáfu til kynna að konan hefði fengið of stóran morfínskammt. Það eina sem studdi þá tilgátu var framburður vitnis sem sagði að samstarfskonurnar hefðu opnað lyfjadælu hinnar látnu og sprautað umtalsverðu magni af morfíni í hana. Var önnur þeirra sögð hafa sagt við hina að hafa ekki meira en 18 millilítra í sprautunni við dælinguna. Vitnið hafi þá spurt hvort það væri leyfilegt en að hún hafi þá fengið það svar frá samstarfskonunum að athæfið væri ekki leyfilegt en að þær gerðu það mjög oft. Annað vitni sem starfaði á hjúkrunarheimilinu sagði hins vegar að það teldi andlátið ekki hafa borið að með óeðlilegum hætti. Var því ekki fallist á kröfur lögreglunnar á Suðurlandi um að grunur væri um að andlátið hefði borið að með refsiverðum hætti og var því úrskurður héraðsdóms Suðurlands staðfestur. Tengdar fréttir Lögregla rannsakar andlát á hjúkrunarheimili í Eyjum Rannsókn vegna andlátsins hætt „Beðið eftir niðurstöðum úr mörgum rannsóknum“ Bíða eftir frekari gögnum vegna andlátsins Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Þurftu að breyta aðgerðum eftir úrskurð héraðsdóms » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lagði upp í sigri í Svíþjóð Hundruð flýja skógarelda sjóleiðis frá Ítalíu Ekkert sem sannaði að konan hefði fengið of mikið morfín Segist elska Liverpool og vill ekki fara fet Sigur FCK í fyrsta leik tímabilsins Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Nýtt innflutningsgjald í bígerð Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Mest lesið Í gær Í vikunni Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Netsvikari herjar á íslenska rithöfunda „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Lögreglan varar við vindi og úrkomu á Bræðslunni Myndir: Mikil gleði á Mærudögum Þoka á Hornbjargsvita en mikill gestagangur Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Feðgar greindust báðir með hvítblæði Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Þyrlan kölluð út vegna bráðaveikinda Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Nýjast á mbl.is » Lagði upp í sigri í Svíþjóð Hundruð flýja skógarelda sjóleiðis frá Ítalíu Ekkert sem sannaði að konan hefði fengið of mikið morfín Segist elska Liverpool og vill ekki fara fet Sigur FCK í fyrsta leik tímabilsins Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Feðgar greindust báðir með hvítblæði Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Mest lesið Í gær Í vikunni Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Netsvikari herjar á íslenska rithöfunda „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Lögreglan varar við vindi og úrkomu á Bræðslunni Myndir: Mikil gleði á Mærudögum Þoka á Hornbjargsvita en mikill gestagangur Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Feðgar greindust báðir með hvítblæði Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Gular viðvaranir vegna hvassviðris Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Forsendur fyrir refaveiðum brostnar Þyrlan kölluð út vegna bráðaveikinda Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu