Bragi Smith var nýlega ráðinn sölustjóri Sæplasts og iTUB í Evrópu eftir að hafa starfað sem viðskipta- og þróunarstjóri hjá iTUB. Hann hefur víðtæka reynslu af sölu, rekstri, markaðsmálum og viðskiptaþróun. Hann rak meðal annars hönnunarfyrirtækið Lín Design í áratug, starfaði við eignastýringu hjá Kaupþingi og sem fjármálaráðgjafi hjá Morgan Stanley. „Það er spennandi að fá að leiða sölustarfsemi Sæplasts og iTUB um alla Evrópu. Við erum með öflugt sölunet og ég sé mikil tækifæri til áframhaldandi vaxtar,“ segir Bragi. Sæplast var stofnað árið 1984 og þróar og framleiðir margnota plastker fyrir sjávarútveg og matvælaiðnað. Kerin gegna mikilvægu hlutverki við meðhöndlun, kælingu og varðveislu hráefnis. Bragi segir markaðinn taka hröðum breytingum. Viðskiptavinir geri auknar kröfur um skilvirkari flutninga, betri nýtingu auðlinda og lausnir sem draga úr sóun. Bragi sér sérstaklega tækifæri í sjávarútvegi, fiskeldi og kjöt- og matvælaiðnaði, þar sem margnota lausnir geta stuðlað að betri nýtingu, lægri kostnaði og minna umhverfisspori. Sæplast og iTUB hafa jafnframt vaxið á kjötmarkaði í Evrópu og verður sá markaður mikilvægt vaxtarsvið á næstu árum. „Reynslan hefur kennt mér að árangur byggist á því að hlusta á viðskiptavininn og þróa lausnir sem skapa raunveruleg verðmæti.“ Nánar er rætt við Braga í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér .