Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stórsigur hjá ÍA eftir fimm tapleiki í röð

Read Full Article →

Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. ÍA vann 5-1 sigur á Stjörnunni á Akranesi. Haukur Andri Haraldsson, Viktor Jónsson og Jón Gísli Gíslason komu ÍA í 3-0 á fyrstu 25 mínútum leiksins. Andri Rúnar Bjarnason minnkaði muninn í 3-1 um miðjan seinni hálfleik en Markús Páll Ellertsson bætti fjórða og fimmta marki ÍA við. Skömmu fyrir fimmta markið varði Árni Marinó Einarsson markvörður ÍA vítaspyrnu frá Árna Vilhjálmssyni. Þetta er langþráður sigur ÍA sem vann síðast leik þann 16. júní gegn Val en síðan fylgdu fimm tapleikir í röð. ÍA komst upp úr níunda sæti í það sjöunda með 18 stig. Stjarnan er að sogast niður í fallbaráttuna og er í níunda sæti með 15 stig, tveimur stigum frá fallsæti. Markalaust hjá Fram og FH Í hinum leiknum gerðu Fram og FH markalaust jafntefli í Úlfarsárdal. Fram hefði með sigri geta komist upp fyrir KR í annað sæti deildarinnar. Fram er í þriðja sæti með 34 stig, einu á eftir KR. FH er taplaust í sjö leikjum í röð en er ennþá í fallsæti, því ellefta og næst neðsta í deildinni. FH hefur gert fimm jafntefli í síðustu sjö leikjum og unnið tvo sigra. FH er með 13 stig, einu stigi á eftir KA sem er í tíunda sæti en á leik til góða. KA mætir Þór í Akureyrarslag annað kvöld. Besta deild karla

Share this article