- What: A solar event and fishing activities were reported at Hvaleyrarvatn.
- Impact: No security impact.
Meðal þess sem gestir við Hvaleyrarvatn skemmtu sér við í dag var að halda afmælisfögnuð. Margir veiddu síli og veiðarfærin ýmist fata eða háfur og Eiríkur Skúli Haraldsson var á staðnum með Maríu Friðriku Haraldsdóttur ömmu sinni, sem hafði ekki komið að Hvaleyrarvatni í mörg ár. „Það er bara ógeðslega gott veður hérna,“ sagði Eiríkur um veðurblíðuna. Þau Ísabella Nótt, Benedikt Logi og Viktoría Sól Hjörleifsbörn settu bát á flot og reru um vatnið. Þau sögðu róðurinn ganga vel, en hann gæti reynst erfiður ef róið væri lengi.