Fangavörður hefur verið sendur í leyfi og yfirheyrður vegna gruns um brot í starfi. Frá þessu greinir Morgunblaðið í dag og vísar til saksóknara hjá Héraðssaksóknara og fangelsismálastjóra. Þar er haft eftir Karli Inga Vilbergssyni varahéraðssaksóknara að maðurinn sæti rannsókn og hafi verið yfirheyrður. Birgir Jónasson fangelsismálastjóri staðfestir við blaðið að starfsmaður stofnunarinnar hafi verið sendur í leyfi. Blaðið hefur eftir heimildum að meint brot mannsins tengist máli lögmanns sem lögregla handtók á síðasta ári grunaðan um aðild að skipulagðri glæpastarfsemi.