Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.7.2026 | 22:39 Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Konan hefur setið í fangelsi hluta árs fyrir líkamsárás og þjófnað. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Síbrotakona á fertugsaldri var á dögunum dæmd í tólf mánaða fangelsi í Héraðdsómi Reykjavíkur fyrir margvíslegan þjófnað á vörum að andvirði nær einnar milljónar króna. Brotin voru framin á tímabilinu september 2024 til apríl 2026, en konan hefur setið í fangelsi hluta árs vegna dóms sem féll í Landsrétti í lok síðasta árs þar sem hún var meðal annars fundin sek um þjófnað og líkamsárásir. Konan er jafnframt sú sama og var ásamt fyrrverandi sambýlismanni sínum dæmd til fjórtán mánaða fangelsisvistar fyrir tvær líkamsárásir og fjölda þjófnaðar- og umferðarlagabrota. Frétt af mbl.is Síbrotapar dæmt fyrir líkamsárásir og þjófnað Hrækti framan í starfsmann 66°Norður Alls var konan ákærð í 28 liðum, þar af 25 fyrir margvíslegan þjófnað, en einnig einum fyrir fjársvik með því að hafa með stolnu greiðslukorti greitt alls 12.000 krónur í spilakassa Háspennu. Þá er hún ákærð í einum lið fyrir líkamsárás með því að hafa hrækt framan í starfsmann 66°Norður í versluninni, og enn einum fyrir gripdeild með því að hafa rænt sígarettupakka sem geymdur var á bak við afgreiðsluborð verslunar Euro Market. Meðal þess sem konan hnuplaði auk áfengis og peninga var munaðarvara á borð við ilmvötn, sælgæti og merkavörufatnaði úr verslunum á borð við 66°Norður, en einnig nauðsynjavörur á borð við hársápu, tannþráð og matvöru, og nemur andlag hins stolna tæplega 900.000 krónum. Meðal þess sem konan hnuplaði auk áfengis og peninga var munaðarvara á borð við ilmvötn, sælgæti og merkavörufatnaði úr verslunum á borð við 66°Norður. mbl.is/Eggert Jóhannesson Hefur látið af neyslu fíkniefna Alls hefur konan verið dæmd átta sinnum fyrir auðgunarbrot og fjórum sinnum fyrir líkamsárásir, nú síðast til 15 mánaða óskilorðsbundins fangelsis fyrir meðal annars þjófnað og líkamsárás með dómi Landsréttar þann 16. desember 2025. Fyrir dómi játaði konan brot sín skýlaust og lýsti því að hún glímdi við alvarleg veikindi og að hún hefði látið af allri neyslu ávana- og fíkniefna og kvaðst finna til mikillar eftirsjár og vilja snúa lífi sínu til betri vegar. Öll eru brotin tengd mikilli fíkniefnaneyslu hennar. Með dómnum, sem féll þann 15. júlí 2026, er konunni gert að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, alls 971.850 krónur, og samtals 214.608 krónur í skaðabótakröfur til verslana Haga, Krónunnar, Elko og N1. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Eiginkona þjálfarans skotin á heimili þeirra Átti eina fótboltann í þorpinu um tíma Gefur út lag með heimsþekktum rappara Hætti í fótbolta eftir áfall og fann frið í garðyrkju Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enn sár skortur þrátt fyrir fögur fyrirheit Ekki innstæða fyrir launahækkunum Hægt að skipta á honum og heilu liði Af hverju taka við löstunum líka? Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Ástandið aldrei verið eins slæmt Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Nýjast á mbl.is » Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Eiginkona þjálfarans skotin á heimili þeirra Átti eina fótboltann í þorpinu um tíma Gefur út lag með heimsþekktum rappara Hætti í fótbolta eftir áfall og fann frið í garðyrkju Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslendingum sendur tónninn Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Ástandið aldrei verið eins slæmt Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur

Share this article