Innlent | Morgunblaðið | 28.7.2026 | 8:25 „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segi óvanalegt að stórir skjálftar verði á Nesjavöllum. Samsett mynd Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Óvanalegt er að stórir skjálftar verði á Nesjavöllum þar sem stór jarðskjálfti varð í fyrrinótt. Þetta segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur í samtali við mbl.is. Upptök skjálftans voru rétt norðan við Hengilinn en hann mældist 4,1 að stærð. Um er að ræða stærsta skjálftann á Nesjavöllum síðan árið 1998 þegar skjálfti af stærðinni 4,6 mældist þar. „Þetta er með stærstu skjálftum þarna. Þetta er ekki stórskjálftasvæði eins og Suðurlandsskjálftabeltið,“ segir Páll. Frétt af mbl.is Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Mælist beint undir virkjuninni Skjálftans varð vart víða á höfuðborgarsvæðinu og í nærsveitum en hann fannst vel í Hveragerði. Þá bárust Veðurstofunni tilkynningar um að hann hefði fundist vestur á Snæfellsnesi. Segir Páll að þrátt fyrir að þetta sé stærsti skjálftinn sem mælst hefur á Nesjavöllum í nær 30 ár verði seint sagt að skjálfti upp á 4,1 að stærð teljist neitt alltof stór. Það sé þó merkilegt að hann mælist í raun beint undir Nesjavallavirkjun. Ekki sé ástæða til þess að hafa áhyggjur af því að eldgos kunni að vera í vændum þrátt fyrir skjálftann. „Þetta er að öllum líkindum ekki tengt neinni kvikuvirkni eða neinu þess háttar,“ segir Páll. Skjálftanum fylgdu nær engir eftirskjálftar sem Páll segir að verði að teljast nokkuð óvanalegt. „Það er frekar óvenjulegt og bendir yfirleitt til þess að spennan sé frekar há á svæðinu. Þetta er líka stundum einkenni forskjálfta sem koma á undan stærri skjálftum en það er tæplega um það að ræða þarna.“ Frétt af mbl.is „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Ekki hættusvæði Þá segist Páll ekki eiga von á því að fleiri stórir skjálftar á Nesjavöllum muni fylgja í kjölfarið. „Í raun og veru má ekki eiga von á því. Það er frekar óvenjulegt að fá svona skjálfta á þessum stað. Þetta er ekki hættusvæði varðandi jarðskjálfta,“ segir hann. Páll telur þó ómögulegt að segja til um hvernig þróun verði á svæðinu á næstu mánuðum. Lifandi svæði Eins og áður segir voru upptök undir Nesjavallavirkjun. „Þetta er náttúrulega lifandi svæði. Þetta er háhitasvæði sem er nýtt til húshitunar og rafmagnsframleiðslu og það kemur svo sem ekkert á óvart þó að það verði skjálftar þarna. Það sem er þó óvenjulegt er þessi skortur á eftirskjálftum,“ segir jarðeðlisfræðingurinn að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Englendingurinn valdi lið Aðsend grein: Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Gerðu vel við sig í lúxusfríi á Korfú Stór skjálfti og flóðbylgjuviðvörun í Japan Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óvissa um afleiðingar atkvæða Kristrún: „Risastórt vandamál“ Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Feðgar greindust báðir með hvítblæði Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Segir nýjan veg ekki skemma Landmannalaugar Átti eina fótboltann í þorpinu um tíma Skýjað, skúrir og hellidembur Meginþorri umsókna renni í gegn Berunesfjölskyldan rekur staðinn saman Snjallúrin skemma fyrir öðrum Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Nýjast á mbl.is » „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Englendingurinn valdi lið Aðsend grein: Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Gerðu vel við sig í lúxusfríi á Korfú Stór skjálfti og flóðbylgjuviðvörun í Japan Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki verra veður á morgun en í dag Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Kristrún: „Risastórt vandamál“ Feðgar greindust báðir með hvítblæði Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Segir nýjan veg ekki skemma Landmannalaugar Átti eina fótboltann í þorpinu um tíma Skýjað, skúrir og hellidembur Meginþorri umsókna renni í gegn Berunesfjölskyldan rekur staðinn saman Snjallúrin skemma fyrir öðrum Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann