Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kvöld helgað íslenskum tónlistarmyndböndum

Read Full Article →

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík í samstarfi við RÚV og Smekkleysu standa í fyrsta sinn fyrir sérstökum viðburði tileinkuðum íslenskum tónlistarmyndböndum. Þann 28. ágúst verður kastljósinu beint að tónlistarmyndbandinu sem sjálfstæðu listformi, glænýjum myndböndum í bland við tímalausa íslenska klassík, og því skapandi samstarfi tónlistarfólks og kvikmyndagerðarfólks sem hefur um áratugaskeið mótað íslenska menningu. Viðburðurinn er haldinn í húsakynnum Smekkleysu og er öllum opinn án endurgjalds. Á dagskránni verður annars vegar úrval nýrra íslenskra tónlistarmyndbanda sem valin verða úr innsendum verkum og hins vegar sérvalin söguleg dagskrá sem dregur fram eftirminnileg tónlistarmyndbönd úr íslenskri tónlistarsögu. Sögulega dagskráin er í umsjón Magnúsar Leifssonar leikstjóra, en myndböndin sem sýnd verða eru að stórum hluta sótt í safn RÚV. Maggi, eins og hann er oftast kallaður, hefur um árabil verið meðal afkastamestu og áhrifamestu tónlistarmyndbandaleikstjórum landsins. Með samstarfi sínu við tónlistarmenn á borð við Birni, Retro Stefson og Of Monsters and Men hefur hann átt ríkan þátt í að móta sjónræna arfleifð íslenskrar tónlistar. Með viðburðinum vill hátíðin skapa fastan vettvang þar sem þessari mikilvægu hefð er fagnað, um leið og kastljósinu er beint að nýrri kynslóð höfunda sem er að endurnýja listformið. RIFF hvetur leikstjóra og tónlistarfólk til að senda inn tónlistarmyndbönd sem eru annaðhvort nýútgefin eða verða gefin út á árinu 2026. Valnefnd mun fara yfir öll innsend verk og velja þau myndbönd sem mynda dagskrá kvöldsins. Höfundar valinna verka hljóta meðal annars RIFF Bransa-passann 2026 og fá tækifæri til að kynna verk sín og mynda tengsl innan kvikmynda- og tónlistargeirans. Tónlistarmyndbönd á RIFF 28. ágúst 2026 Smekkleysa, Reykjavík Aðgangur ókeypis Nánari upplýsingar og hlekk á umsóknareyðublað má finna á heimsíðu hátíðarinnar.

Share this article