Andstaða aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins (SA) við aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur aukist, eftir því sem fram kemur í niðurstöðum nýrrar Gallup-könnunar frá fyrri hluta júlí. Niðurstöðurnar sýna jafnframt að fullveldi Íslands vegur þyngst þegar fyrirtækin meta afstöðu sína til aðildar. Samkvæmt könnuninni segjast 66% aðildarfyrirtækjanna vera andvíg ESB-aðild, samanborið við 60% í síðustu könnun. Þá eru 22% hlynnt aðild en 12% taka ekki afstöðu. Aðspurð um hvaða sjónarmið hefðu mest áhrif á afstöðu fyrirtækjanna reyndist fullveldi Íslands vega þyngst. Þar á eftir komu sjónarmið sem tengjast yfirráðum yfir náttúruauðlindum, regluverki Evrópusambandsins, sjálfstæðu ákvörðunarvaldi Íslands og efnahagslegu svigrúmi, meðal annars þegar kemur að vöxtum og verðbólgu. Heimild: Könnun Gallup meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins (3.-15. júlí 2026) Samkvæmt SA kemur þessi afstaða fram þvert á atvinnugreinar, stærð fyrirtækja og landshluta. Þótt áherslur séu mismunandi milli greina, meðal annars hvað varðar auðlindamál í sjávarútvegi, séu fullveldi, sjálfstætt ákvörðunarvald og stjórn yfir auðlindum meðal þeirra sjónarmiða sem oftast eru nefnd. Þá sé meirihluti fyrirtækja andvígur ESB-aðild í öllum landshlutum. Svipaðar niðurstöður er að finna þegar spurt var um upptöku evru. Samkvæmt könnuninni segjast 54% aðildarfyrirtækja SA vera andvíg upptöku evru en 36% hlynnt henni. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, segir mikilvægt að umræða um aðild að Evrópusambandinu taki mið af þeim sjónarmiðum sem fyrirtækin sjálf leggi mesta áherslu á. „Í umræðunni hefur því verið haldið fram að andstaða atvinnulífsins við ESB-aðild skýrist af ótta við aukna samkeppni og að mörg fyrirtæki kunni vel við sig í umhverfi verðbólgu. En þessu er öfugt farið, verðbólga eykur kostnað, sóar tækifærum og er andstæða stöðugleika og fyrirsjáanleika sem fyrirtæki vilja.“ segir Bjarni.