Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Innbrotum fækkað í miðbænum eftir að síbrotamenn voru læstir inni

Read Full Article →

Innbrotum og þjófnuðum í miðborg Reykjavíkur hefur fjölgað verulega í sumar. Lögreglan telur sig þó hafa náð tökum á ástandinu eftir að þrír af umsvifamestu innbrotsmönnunum voru settir í síbrotagæslu. Þetta kom fram á samráðsfundi um nágrannavörslu og öryggismál sem Reykjavíkurborg og lögreglan héldu í Ráðhúsinu í dag. Samkvæmt tölum frá lögreglunni þrefaldaðist fjöldi innbrota í miðborginni á milli apríl og júlí, en þau fóru úr ellefu í um þrjátíu. Á sama tíma voru tilkynnt 62 önnur þjófnaðarmál sem var helmingi meira en í aprílmánuði. Fólk með fíknivanda ber ábyrgð á flestum innbrotum Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögregluþjónn útskýrði á fundinum að um ákveðna hringrás væri að ræða. Fólk með alvarlegan fíknivanda bæri ábyrgð á flestum innbrotunum og hefði lífsviðurværi sitt af því að fremja auðgunarbrot. „Þannig að fólkið kemur oft úr afplánun og fer fljótlega aftur í fyrri iðju. Lögreglan klukkar þau, við förum fram á síbrotagæslu, fólkið fær dóm og síðan bara byrjar hringurinn aftur,“ sagði Ásgeir. Hann benti á að breytingin í sumar hafi verið sú að fangelsin voru full og því var ekki hægt að koma fólki í síbrotagæslu fyrr en fyrir rúmri viku. Það hafi hins vegar skilað skjótum árangri, en aðeins tvö innbrot voru tilkynnt á svæðinu síðustu sjö daga eftir að mennirnir voru læstir inni. Brot eins og þessi flest framin í miðborgum Eyþór Víðisson, sérfræðingur í öryggismálum, sagði að innbrot í borgum væru yfirleitt flest í miðborgum. „Það er bara í eðli afbrota að tækifærisbrot eins og þessi eru að mestu leyti í miðborgum af því að þar er mesta fólkið og í rauninni flestu tækifærin,“ sagði Eyþór. Hann kvaðst telja mögulegt að vinna gegn þessu: „Við getum kannski illa stoppað eftirspurnina eftir hlutum en við getum allavega reynt að passa okkur og okkar nærumhverfi.“ Þegar brotist er inn er aðallega stolið peningum, skartgripum og smærri raftækjum en utanhússþjófnaður snýst frekar um rafhjól og gaskúta. Þá hefur aukning orðið á vasaþjófnaði á fjölmennum ferðamannastöðum, svo sem við Hallgrímskirkju, en lögreglan telur að þar sé um skipulagða glæpi að ræða á vegum erlendra hópa sem koma hingað til lands í þeim eina tilgangi. Nágrannavarsla grunnurinn að góðu samfélagi Hildur Björnsdóttir borgarstjóri, sem blés til fundarins vegna áhyggja íbúa, sagði borgina vinna að ýmsum viðbrögðum við innbrotunum. Borgin hefur birt ráðleggingar fyrir íbúa og fyrirtæki á vef sínum og stefnir á að hrinda í framkvæmd nágrannavörsluátaki. „Við í borginni förum auðvitað ekki með löggæsluvaldið en við erum að reka öryggismyndavélakerfi með lögreglunni og Neyðarlínunni niðri í miðbæ og erum nú að vinna að nýjum samningi þar sem mögulega er kominn tími til að stækka gæslusvæðið og sömuleiðis uppfæra myndavélakerfið,“ sagði Hildur. Að lokum undirstrikaði borgarstjóri mikilvægi þess að velferðarkerfið og lögreglan vinni þétt saman að félagslegum úrræðum fyrir þennan hóp. „Við viljum halda áfram góðu samstarfi við lögregluna, við ætlum að efla myndavélaeftirlitið, við þurfum að efla okkar velferðarkerfi og svo skiptir nágrannavarslan gríðarlega miklu máli. Hún er grunnurinn að góðu samfélagi,“ sagði Hildur að lokum. Reykjavíkurborg og lögreglan hyggjast efla nágrannavörslu, velferðarþjónustu og myndavélaeftirlit til að sporna við auknum innbrotafaraldri í miðborginni. Innbrot og þjófnaðir í miðborg Reykjavíkur þrefölduðust í sumar þar sem fangelsi voru yfirfull.

Share this article