Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Framkvæmdir hafnar vegna uppbyggingar nýs íbúahverfis

Read Full Article →

Framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg við Arnarnesháls eru fyrsta skrefið í uppbyggingu nýs hverfis í Garðabæ. Íbúar í nágrenninu hafa gagnrýnt áformin. Deiliskipulag Arnarlands, nýs íbúahverfis í Garðabæ, var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 6. mars. Landið afmarkast af Hafnarfjarðarvegi til vesturs, Arnarnesvegi til suðurs, Fífuhvammsvegi til austurs og sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs til norðurs. Íbúar í nágrenni við Arnarland hafa stofnað Facebook-síðu undir nafninu Arnarland athugasemdir íbúa þar sem margir hverjir lýsa áhyggjum af þéttri og hárri byggð. Til stendur að reisa um 450 íbúðir á reitnum. Tekið hafi verið tillit til ábendinga í skipulagsferli Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, segir að þrjú ár hafi verið tekin í skipulagsvinnu og á þeim tíma hafi verið tekið tillit til ábendinga og unnið að lausnum. „Það hefur þýtt það að við höfum bæði lækkað hæðir húsa mjög mikið, það hefur gerst á atvinnusvæðinu. Atvinnusvæðið hefur verið fært fjær Hafnarfjarðarveginum til að bregðast við kvörtunum um mögulegt skuggavarp og það var rýnt mjög vel í ferlinu.“ Almar telur það skyldu Garðabæjar að þróað sé hágæðahverfi með góðum og björtum íbúðum en líka atvinnustarfsemi. „Sem þýðir að Garðbæingar og þeir sem búa hér næst munu eiga þess kost að fara skamman veg til vinnu.“ Framkvæmdir eru hafnar við Hafnarfjarðarveg til að tengja fráveitu- og neysluvatnslagnir í hverfið. Hjáleiðir verða byggðar upp tímabundið við veginn meðan á þeim stendur og verklok eru áætluð þann 18. ágúst. Skipulagi Arnarlands, sem er nýtt hverfi í Garðabæ, hefur verið breytt eftir athugasemdir frá íbúum. Framkvæmdir eru nú hafnar við lagningu fráveitu- og neysluvatnslagna við Hafnarfjarðarveg.

Share this article