Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Árásir á ný eftir nokkurra daga hlé

  • What: Iran launches attacks on US military bases in the Middle East
  • Impact: Regional tensions escalate with military confrontations
Read Full Article →

„Hefnd er óumflýjanleg,“ stendur á götuskilti í Teheran. Íranar hófu árásir á ný á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum í kvöld eftir nokkurra daga hlé.EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Bandaríkjaher og her Sádi Arabíu gerðu árásir á hernaðarlega innviði víða í Íran í nótt. Árásirnar eru sagðar svar við árásum Írana á herstöðvar Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum fyrr í kvöld samkvæmt færslu hersins á X . Bandaríski herinn greindi frá því í annarri færslu á X fyrr í kvöld að herinn hefði skotið niður fjölda íranskra flugskeyta sem beint var að herstöðvum Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og því hefðu árásir Írana mistekist. Ekki kemur fram að hvaða herstöð árásirnar beindust. Árásir milli Bandaríkjanna og Írans lágu niðri yfir helgina og fram að árásum Írana fyrr í kvöld eftir nær tveggja vikna árásarlotu þeirra á milli.

Share this article