Matur | mbl | 29.7.2026 | 14:00 Palli og Valli: „Hann er kominn í fangelsi og búinn að játa brotið“ Páll Óskar Hjálmtýsson og Valgeir Gunnlaugsson eiga og reka Pizza 107, við Hagamel 67. mbl.is/Eyþór Elínrós Líndal [email protected] Setja bókamerki „Innbrotsmálið er leyst. Lögreglan veit hver viðkomandi aðili er. Þetta er, eins og okkur grunaði, góðkunningi lögreglunnar, en þeir sáu strax á myndbandsupptöku hver þetta var. Hann er búinn að játa á sig brotið. Ég fæ ekkert upplýsingar um nafn eða hver þetta er, en hann er í haldi lögreglunnar,“ segir Valgeir Gunnlaugsson eigandi Pizza 107 að Hagamel 67 í Vesturbænum. Þess má geta að hann á staðinn með Páli Óskari Hjálmtýssyni tónlistarmanni. mbl.is hefur flutt fréttir af innbrotahrinu í veitingahús í miðborginni á undanförnum vikum, inn í húsnæði fólks og fyrirtæki. Svo virðist sem lögregla og borg hafi tekið höndum saman og gert eitthvað í málunum. Frétt af mbl.is Brotist inn hjá Páli Óskari og Valla Frétt af mbl.is Náðu myndbandi af þjófnum en kerfið fór ekki í gang Frétt af mbl.is Páll Óskar: „Takk Securitas!“ Frétt af mbl.is 43 innbrots- og þjófnaðarmál á 14 dögum „Líklegast einstaklingur með fíknivanda“ „Þegar lögreglan hringdi í mig og spurði hvort ég vildi kæra, þar sem játning var komin í málið, þá tók ég ákvörðun um að kæra ekki. Þetta er líklegast einstaklingur með fíknivanda, og ég sé enga ástæðu til að bæta ofan á það. Hann fær vonandi tækifæri til að snúa lífi sínu við. Ég ætla ekki að gera meira í þessu. Fyrir mér er þetta mál búið og leyst. Ég er bara ánægður ef ég get haldið mínu striki og fólk kemur vonandi bara til mín áfram að kaupa pítsur,“ segir Valli og bætir við: „É g hef fulla samúð með einstaklingum með fíknivanda. Ég veit að allt þetta fólk er gott fólk. Ég þekki það af persónulegri reynslu. Enginn er í afbrotum af því að það er svo gaman. Það eru allavega mjög fáir þannig. Flestir eru bara að eiga fyrir næsta skammti eða skuld. Þetta er samfélagslegt vandamál sem við sem samfélag þurfum að takast betur á við. Til eru gagnreyndar aðferðir sem virka fyrir einstaklinga í vanda og við þurfum bara að bjóða upp á þær og halda betur utan um þessi mál.“ Frétt af mbl.is „Brotist inn hjá okkur bara eins og flestum öðrum“ Fyrirgefur fljótt en vill ekki fleiri innbrot Það er auðheyrt að Valli er fljótur til fyrirgefningar. „Ég bara vorkenni þessum aðila sárt. Þegar fólk er komið á þennan stað í lífinu þá er alltaf í boði að bara spyrna sér upp frá botninum. Ég vona að honum vegni vel og brjótist ekki inn hjá mér aftur, heldur nái sér á strik í lífinu. Það er í boði fyrir alla bati, sér í lagi fyrir þá sem þiggja hjálpina.“ Frétt af mbl.is „Allt var brotið og peningaskápurinn galopinn“ Lífið heldur áfram Lífið heldur áfram á Pizza 107 og segir Valli að dagarnir snúist aðallega um að búa til gómsætar pítsur þessa dagana og svo er hann spenntur fyrir síðasta hverfiskvöldi staðarins sem verður haldið næsta fimmtudag. „Hvern fimmtudag í sumar höfum við haldið mjög skemmtileg hverfiskvöld þar sem við höfum boðið upp á Pöbb kviss, karíókísamsöng og litla tónleika. Hverfiskvöldin munu enda með sprengju næsta fimmtudag þar sem Palli verður með tónleika á staðnum. Þegar við tilkynntum að Palli væri með tónleika þá bókaðist upp hjá okkur strax. Við fengum strax bókanir frá klukkan fimm til níu um kvöldið og ákváðum við þá að leysa þetta þannig að Palli kæmi fram einu sinni á klukkutíma fresti og tæki þá þrjú til fjögur lög hverju sinni,“ segir Valli. Það mun heyrast í Palla um hverfið Hvað með þá sem ná ekki í borð, geta þeir staðið fyrir utan og hlustað á tónleikana? „Palli ákvað að leigja aukahljóðkerfi svo að tónleikarnir heyrðust betur út og það verður einn hátalari úti, fyrir þá sem eru að kaupa ís eða eru í göngu fram hjá staðnum. Það eru allir velkomnir að hlusta. Við munum hækka vel í græjunum.“ Frétt af mbl.is Páll Óskar: „Mér er einfaldlega ekki sama hvað verður um þetta horn“ Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Snakkpokasamlokan“ er það vinsælasta núna Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Önd sem þú getur borðað með skeið Hakk og spaghettí í brúnni sósu veldur uppnámi á TikTok „Hér hafið þið eitt það besta taco sem ég hef gert!“ Ása Regins og Jana með sumarlegustu matarvikuna Bestu kökur Íslands Lambakóróna í kryddjurtahjúp með bökuðu smælki Linda Ben: Pasta með risarækjum Hnetukaka með rjóma og berjum uppskrift úr vinsælu dönsku tímariti Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Hakk og spaghettí í brúnni sósu veldur uppnámi á TikTok Bestu kökur Íslands „Hér hafið þið eitt það besta taco sem ég hef gert!“ Linda Ben: Pasta með risarækjum Bolli tók þessa parmesansósu með til Barcelona Lambakóróna í kryddjurtahjúp með bökuðu smælki Ása Regins og Jana með sumarlegustu matarvikuna Eyddu ríflega 500 þúsund krónum í gosvél fyrir heimilið Lærði að flaka fisk strax sem barn Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Páll Óskar: „Takk Securitas!“ Dísudraumur er drottning hverrar veislu Eyddu ríflega 500 þúsund krónum í gosvél fyrir heimilið Daði Freyr og Árný Fjóla í magnaðri stemningu á Akureyri Náðu myndbandi af þjófnum en kerfið fór ekki í gang Halla forseti í heimsókn hjá Völla Snæ og Þóru Tom Holland og Matt Damon skilja ekki þennan rétt Einn vinsælasti eftirréttur Amalfi-strandarinnar Bakari gagnrýndur fyrir ummæli um konur Áhugaverðir eftirréttir Dísudraumur er drottning hverrar veislu Elenora bakari í London með nýja köku Einn vinsælasti eftirréttur Amalfi-strandarinnar Lúxus án flækju: Bananar með karríhjúp og ís á fimm mínútum Tíu vinsælustu: Kökurnar sem þú verður að prófa Ljúf eplapanna á grillið með karamellu fyrir sannkallaða sælkera Fleiri eftirréttir Kokkalandsliðið » „Gestir sögðust aldrei hafa upplifað annað eins: Kvöldið á Hótel Geysi vakti athygli“ „Það má alveg segja að þetta sé árið mitt“ Merki um aukna athygli á íslenskri matargerð erlendis Meira um kokkalandsliðið Mest lesið Í gær Í vikunni „Snakkpokasamlokan“ er það vinsælasta núna Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Önd sem þú getur borðað með skeið Hakk og spaghettí í brúnni sósu veldur uppnámi á TikTok „Hér hafið þið eitt það besta taco sem ég hef gert!“ Ása Regins og Jana með sumarlegustu matarvikuna Bestu kökur Íslands Lambakóróna í kryddjurtahjúp með bökuðu smælki Linda Ben: Pasta með risarækjum Hnetukaka með rjóma og berjum uppskrift úr vinsælu dönsku tímariti Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Hakk og spaghettí í brúnni sósu veldur uppnámi á TikTok Bestu kökur Íslands „Hér hafið þið eitt það besta taco sem ég hef gert!“ Linda Ben: Pasta með risarækjum Bolli tók þessa parmesansósu með til Barcelona Lambakóróna í kryddjurtahjúp með bökuðu smælki Ása Regins og Jana með sumarlegustu matarvikuna Eyddu ríflega 500 þúsund krónum í gosvél fyrir heimilið Lærði að flaka fisk strax sem barn Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Páll Óskar: „Takk Securitas!“ Dísudraumur er drottning hverrar veislu Eyddu ríflega 500 þúsund krónum í gosvél fyrir heimilið Daði Freyr og Árný Fjóla í magnaðri stemningu á Akureyri Náðu myndbandi af þjófnum en kerfið fór ekki í gang Halla forseti í heimsókn hjá Völla Snæ og Þóru Tom Holland og Matt Damon skilja ekki þennan rétt Einn vinsælasti eftirréttur Amalfi-strandarinnar Bakari gagnrýndur fyrir ummæli um konur Áhugaverðir eftirréttir Dísudraumur er drottning hverrar veislu Elenora bakari í London með nýja köku Einn vinsælasti eftirréttur Amalfi-strandarinnar Lúxus án flækju: Bananar með karríhjúp og ís á fimm mínútum Tíu vinsælustu: Kökurnar sem þú verður að prófa Ljúf eplapanna á grillið með karamellu fyrir sannkallaða sælkera Fleiri eftirréttir Kokkalandsliðið » „Gestir sögðust aldrei hafa upplifað annað eins: Kvöldið á Hótel Geysi vakti athygli“ „Það má alveg segja að þetta sé árið mitt“ Merki um aukna athygli á íslenskri matargerð erlendis Meira um kokkalandsliðið