Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vill að þingnefnd banni vistun barna í brottvísunarbúðum

Read Full Article →

Mannréttindastjóri Evrópuráðsins hefur áhyggjur af tilvist barna í brottvísunarbúðum sem stjórnvöld áforma að koma á laggirnar. Þetta kemur fram í bréfi sem Michael O'Flaherty, mannréttindastjóri Evrópuráðsins, sendi allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis. Í frumvarpi dómsmálaráðherra um brottvísunarbúðir fyrir útlendinga segir meðal annars að vistun barna verði heimiluð í brottvísunarbúðunum og að starfsfólk megi beita agaviðurlögum. O'Flaherty hefur áhyggjur af því að frumvarpið heimili að börnum sé haldið í brottvísunarbúðunum í allt að níu daga. Vísar í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna O'Flaherty bendir á að ítrekað hafi verið lögð áhersla á að vernda börn á flótta. Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna ber ríkjum að virða, vernda og tryggja réttindi barna án mismununar, þar á meðal óháð stöðu fjölskyldna þeirra. Það teljist brot á réttindum barna að vista þau í fangelsum hvers konar. O'Flaherty hvetur nefndarmenn til að breyta frumvarpi dómsmálaráðherra og undanskilja ákvæði um vistun barna. Í haust lýstu fern réttindasamtök yfir áhyggjum af að börn á flótta verði vistuð í brottvísunarbúðum. UNICEF á Íslandi vill að bannað verði með lögum að börn séu sett í varðhald vegna stöðu þeirra sem útlendingar og vill jafnframt að komið verði í veg fyrir að þau séu vistuð í úrræðum sem jafnast á við varðhald á landamærum. Undir það tóku samtökin Barnaheill sem bentu á að vistun barna í brottvísunarbúðum gæti brotið á rétti þeirra til þeirrar grunnþjónustu sem skipti máli fyrir þroska þeirra og velferð.

Share this article