- What: A car accident occurred on a mountain road in Iceland
- Impact: Could affect local traffic and road safety
Betur fór en á horfðist þegar bíll fór út af veginum á Bolafjalli við Bolungarvík og valt um 200 metra niður. Ökumaður slapp með minni háttar áverka en bíllinn er að öllum líkindum ónýtur. Þetta staðfestir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Ísafirði. Lögreglunni á Vestfjörðum var tilkynnt að bíll hefði oltið á Bolafjalli á þriðja tímanum. Lögregla og tveir sjúkrabílar fóru á vettvang og björgunarsveit og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út. Allt viðbragð var afturkallað þegar þeir fyrstu komu á vettvang. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar. Tildrög slyssins eru ókunn. Fréttin var uppfærð.