Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íbúðarhús í Stykkishólmi varð eldi að bráð

Read Full Article →

Eldur kviknaði í íbúðarhúsnæði við Skúlagötu í Stykkishólmi í dag. Þetta staðfestir Þorbergur Bæringsson, fyrrverandi slökkviliðsstjóri hjá slökkviliði Stykkishólms og nágrennis. Vísir greindi fyrst frá. Einar Strand, núverandi slökkviliðsstjóri, segir að búið sé að slökkva nær allan eldinn en að húsið sé ónýtt. Slökkviliðið vinni nú að því að rífa húsið. Þykkan svartan reyk lagði frá húsinu og yfir bæinn um tíma. Annað hús varð alelda á sama reit Bogi Thorarensen Bragason, sjónarvottur og nágranni í næsta húsi, segir einn íbúa hafa verið í húsinu en náð að forða sér frá eldinum. Viðkomandi hafi ekki verið fluttur til athugunar. Þegar sé búið að rífa stóran hluta hússins. Hann og aðrir nágrannar hafi hlaupið að húsinu með slökkvitæki í fyrstu og reynt að berjast við eldinn en að hiti og reykur hafi verið þeim um of. Hann segir annað hús á sama reit hafa orðið alelda fyrir einhverjum árum.

Share this article