Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 29.7.2026 | 19:59 Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum sem ber veitingastaðinn Glóð innanborðs. Ljósmynd/Aðsend Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Engar ákvarðanir hafa verið teknar um framtíð salarins í Hótel Valaskjálfi á Egilsstöðum eftir að alvarlegt vatnstjón varð þar í síðasta mánuði að sögn eigenda. Íbúar eru uggandi yfir mögulegum áformum um að salurinn, sem gegnt hefur mikilvægu hlutverki í félags- og menningarlífi á Egilsstöðum um áratugaskeið, verði lagður undir hylkjahótel, en eigendur segja það ganga illa upp að einkaaðilar standi straum af rekstri félagsheimilis og vilja endurskoða fyrirkomulagið. „Við erum svona að kanna hvaða möguleikar eru í stöðunni með framhaldið á rekstrinum, en það er ekki búið að ákveða neitt,“ segir Gísli Steinar Gíslason, forráðamaður fyrirtækisins 701 Hotels sem keypti Valaskjálf fyrir tveimur árum, í samtali við mbl.is. Frétt af k100.is Austfirsk menning og gestrisni í fyrirrúmi Snemma í júní varð vatnstjón á salnum sem olli því að hann varð ónothæfur og í kjölfarið varð að fjarlægja allt gólfefni, steypa gólfið upp á nýtt og endurleggja lagnir. Kostnaðurinn „Við erum að staldra við í ljósi þess að við verðum þarna fyrir þessu tjóni, og erum í raun og veru bara búin að standa straum af rekstri þessa salar sem einkaaðilar hingað til,“ segir Gísli. Salurinn hefur verið notaður undir hina ýmsu menningarstarfsemi frá því að hann var tekinn í notkun árið 1966 sem félagsheimili Egilsstaða, að því er Austurfrétt greinir frá, en í lok árs 1998 var gengið frá sölu hótelsins til einkaaðila. Íbúar uggandi Íbúar Fljótsdalshéraðs eru margir hverjir uggandi yfir mögulegum áformum um að breyta salnum í hótelgistingu, og þá jafnvel hylkjahótel, og birti einn þeirra, Máni Valsson, færslu inni á hópnum Íbúar Fljótsdalshéraðs í gærkvöldi. Þar greindi hann frá því að eigendurnir hygðust „nýta tækifærið“ og breyta salnum, sem er gjarnan talinn til fallegri tónleikasala á Íslandi, í hylkjahótel (e. capsule hotel ). Í samtali við mbl.is segir hann hin mögulegu áform gjörsamlega hörmulegar fréttir. „Ef þessi vettvangur hverfur er enginn staður fyrir stærri viðburði í öllum bænum, þar sem salurinn í Sláturhúsinu, sem er eiginlega menningarhús Egilsstaða, er í rauninni frekar ætlaður fyrir blackbox-leikhús og rúmar í mesta lagi rétt yfir 100 manns,“ segir Máni. „Salurinn var byggður með sjálfboðavinnu íbúanna og er náttúrulega bara stolt bæjarins. Þetta er mjög fallegur og frægur salur og það hafa margir viðburðir verið haldnir þarna, og auk þess fara þarna fram árlegir styrktartónleikar á vegum Tónleikafélags Austurlands þar sem allur ágóði rennur til geðheilbrigðismála.“ Valaskjálf er svo til eini salurinn í bænum sem hentar til stærri hátíðahalda og fjöldafunda. Mynd úr safni. mbl.is/Brynjólfur Löve „Glapræði“ að selja Valaskjálf Undir færslu Mána á Facebook hafa spunnist umræður um framtíð salarins og virðast flestir vera á því máli að um mögulegt stórslys væri að ræða yrði salurinn lagður undir hótel og kalla eftir því að sveitarfélagið stígi inn í. „Félagsheimili eiga að vera í almannaeigu og nýtast íbúum, rétt eins og skólar og íþróttamannvirki,“ segir einn þeirra. „Algjört glapræði að selja Valaskjálf.“ Einn íbúi leggur til að salurinn verði friðaður, líkt og Hafnarfjarðarbær gerði við salinn í Bæjarbíói á sínum tíma. Í annarri færslu segir Rúnar Guðmundsson, sem tók ellefu ára gamall þátt í byggingu Valaskjálfar, að Múlaþing eigi að sjá sóma sinn í því að Valaskjálf, og sérstaklega salurinn, sé í eigu fólksins sem stutt hefur félagsstarfsemina frá byrjun. Máni segir það ljóst að eigendur Valaskjálfar hafi verið í sambandi við sveitarfélagið um kaup á þeim hluta sem snýr að félagsheimilinu, en bærinn hafi neitað tilboði. Kveðst skilja áhyggjur heimamanna Gísli staðfestir að ein möguleg af mörgum sviðsmyndum sé sú að salnum verði breytt í hylkjahótel. „Við erum bara að skoða alla möguleika í stöðunni og ítrekum að við munum taka næstu skref í góðu samtali við bæjaryfirvöld.“ Hann segir það ganga illa upp að einkaaðilar standi straum af rekstri félagsheimilis á svæðinu og því myndu bæjaryfirvöld einhvern veginn koma að þeim rekstri ef salurinn ætti áfram að vera nýttur undir félagsstarfsemi. „En við skiljum líka algjörlega áhyggjur heimamanna og viljum náttúrulega bara gera þetta í góðri samvinnu við þá,“ segir hann. Engin ákvörðun verði því að veruleika nema að vel athuguðu máli. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tvisvar sinnum hætt kominn á sjó Flytja fyrsta nýja Latabæjarlagið í 30 ár á Þjóðhátíð 18 ára Tómas hetja í ótrúlegri endurkomu Dramatískt jafntefli í Eyjum Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Umræðan Vaxandi vandi ríkisfjármála Evrópu Hvernig metum við það sem skiptir máli? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Minkar lausir í Mosfellsdal: Skothvellir heyrast Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? „Gríðarlega alvarlegt“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Vaknaði við minka í garðinum Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Þetta er ófremdarástand“ Minkar lausir í Mosfellsdal: Skothvellir heyrast 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hvítrússneskir menn stefna íslenska ríkinu Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Nýjast á mbl.is » Tvisvar sinnum hætt kominn á sjó Flytja fyrsta nýja Latabæjarlagið í 30 ár á Þjóðhátíð 18 ára Tómas hetja í ótrúlegri endurkomu Dramatískt jafntefli í Eyjum Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Umræðan Vaxandi vandi ríkisfjármála Evrópu Hvernig metum við það sem skiptir máli? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Ming Ting færð í gæsluvarðhald Innbrotin fyrirbyggjanleg en fangelsin yfirfull Mest lesið Í gær Í vikunni „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Vaknaði við minka í garðinum Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Þetta er ófremdarástand“ Minkar lausir í Mosfellsdal: Skothvellir heyrast 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Hvítrússneskir menn stefna íslenska ríkinu Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt

Share this article